
Mig minnir að mér hafi sýnst Guðmundur Ingi alls ekkert valda sínu starfi sem menntamálaráðherra á sínum tíma. En tíminn líður hratt í pólitík og eiginlega er ég búinn að gleyma öllu nema því sem er í umræðunni akkúrat núna. Og mér sýnist að Inga Sæland valdi heldur ekkert sínu starfi, hvorki sem menntamálar´áðherra né sem flokksformaður, mér sýnist hún vera jarðýta – og að hún vilji vera það, henni þyki það sjálfri til marks um einhvers konar hæfileika. Kristrún Frostadóttir vill vera sleggja, henni finnst það gott myndmál, það er líka tæki sem er fyrst og fremst notað til þess að ryðja burt því sem fyrir því verður. Til að brj´ota og bramla. Hver er myndlíkingin fyrir Þorgerði Katrínu? Ég sé á smáskilaboðunum þar sem Guðmundi Inga er bolað burt að þetta fólk talar sjálft um forystuna sem „valkyrjurnar“. Er það ekki pínulítið bilað? Hvað gengur eiginlega að fólki í valdastöðum? Var ekki nóg að við skyldum fá yfir okkur Wild Boys, þurfum við líka Valkyrjur? Ef einhver skyldi hafa gleymt því þá er starfi valkyrja sá að flytja menn úr hér-lífinu yfir í handanlífið, þar sem þeir fá síðan að berast á banaspjótum til eilífðarnóns.
Kannski er það þunglyndislegasta í þessu öllu saman að þetta sé það skásta sem er í boði. Þetta er vinstristjórnin. Og umtalsvert skárri en t.d. hægristjórnin í Reykjavíkurborg sem ´ákvað á dögunum að gera þriðja hvern listamann í borginni heimilislausan. Fyrir utan allan annan niðurskurð – einsog að leggja niður mannréttindaskrifstofu. Við höfum bara um að velja öskuna eða eldinn.
***
Nadja er á bókamessunni í Gautaborg með hópi sænskukennara. Ég sagði henni að heilsa öllum sem ég þekki, sem eru ansi margir, og biðja hina að kaupa bækurnar mínar (ef þeir sem ég þekki eiga ekki bækurnar mínar, þekki ég þá ekki lengur).
Enn eitt árið er uppástand vegna Ísraelsvinafélagsins, sem er með bás – það eru allir og frændi hans með bás, þar á meðal mjög margar þjóðir og mjög margir trúarsöfnuðir, en ég held að í ár séu engir nasistar með (það hefur þó gerst). Þar er einhver fyrrum talsmaður IDF á dagskránni sem hefur orðið til þess að talsmenn Palestínu hafa afbókað sig. Vinkona mín Athena Farrokhzad orðaði það einhvern veginn þannig að það sé bilun að telja það „opinn og l´ýðræðislegan vettvang“ þar sem fórnarlömb þjóðarmorðs mæta á sömu forsendum og gerendur þjóðarmorðs.
Áfram heldur bókamessan þó. Einsog alltaf. Ég hef farið fáránlega oft á þessa bókamessu og það er oft gaman þótt maður sé gjarnan mjög lúinn á eftir. Eftirminnilegastur verður samt alltaf fyrsti dagurinn minn fyrsta árið, eða bara fyrstu fimm mínúturnar – ég gekk í gegnum salinn, villtur og vissi ekkert hvert ég ætti að fara, kom að rúllustiga og ákvað að fara upp á næstu hæð, og mætti þá, í rúllustiganum á niðurleið, þeim Dolph Lundgren og Ninu Hagen, sem voru í hörkusamræðum.
***
Mér varð á að opna gamla dagbók og sjá að fyrir ári var ég ótrúlega ánægður með eitthvað sem ég var að skrifa. Ég hélt áfram að lesa þar til ég áttaði mig á því hvað það hefði verið sem ég var að skrifa, og það reyndist vera eitthvað helvítis kjaftæði sem ég hef fyrir löngu hent í ruslafötuna. Ég, sem hef verið svo ánægður með vinnu síðustu vikna, er nú niðurbrotinn maður – það er greinilega ekkert að marka fegurðarskyn mitt! Mín eina huggun er sú að hugsanlega hafi ég bara verið að bera mig vel – sem er, eins undarlega og það hljómar, ekki óhugsandi þótt þetta hafi bara verið í mína eigin persónulegu dagbók, og ég hafi alls ekki meint þetta, ég hafi bara verið að fara vel að sjálfum mér. Er það ekki það sem sjálfshjálparfólkið er alltaf að segja? Að maður eigi ekki að vera vondur við sjálfan sig?
***
Menningarritstjóra Expressen, Victor Malm, finnst gaman að ýta við fólki og skrifar í dag að rithöfundar ættu að elska markaðinn. Í tilefni af bókamessunni. Hann segist alltaf verða leiður á bókmenntahátíðum af því þær sýni að bókmenntirnar séu afmarkað hobbí fyrir tiltekinn lítinn hóp af fólki – eitthvað sem komi veruleikanum lítið við, hafi lítil áhrif, eigi sér bara stað í sparistofum betri borgara – en að bókamessurnar séu öðruvísi, þar þrífist kraftur og kaos og hasar og líf og dauði. Og þar verði ljóst sem öllum ætti alltaf að vera ljóst að þyngd bóka í sögulegum og menningarlegum skilningi er ekki aðskilin frá sölutölunum – þótt annað telji líka og fleira þurfi til – og að einhvern tíma hafi bækur einsog Gravity’s Rainbow verið ofsalegar metsölubækur. Í bókmenntahátíðarheiminum þykir best að vera aftengdur – nýborgaralegur, kallar hann það, og nefnir Rachel Cusk til leiks.
Hann bætir líka við og segir að á bókmenntahátíðunum verði nútildags sjaldan nein fagurfræðileg eða hugmyndafræðileg átök, og þegar þau eigi sér stað séu þau fyrst og fremst performans sem hafi engar afleiðingar – og hann spyr sig í framhaldinu hvort að rithöfundar í dag, eða bókmenntagagnrýnendur, hafi nokkra ósamræmanlega hugsjón um tilgang eða virkni bókmennta eða hvort að „bókmenntirnar sem slíkar“ séu eina hugsjónin. Að það séu til bækur. Blaðsíður. Bókstafir. (Ég er reyndar ekki viss um að hugsjón bókamessunnar sé önnur en að selja pappír).
Ég er áreiðanlega að leggja honum einhver orð í munn hérna. Þið smellið bara á hlekkinn og látið google þýða þetta fyrir ykkur.
Annars sló það mig líka við lesturinn – og hefur kannski gert áður – að líklega eru menningarritstjórar ekki til á Íslandi í þeim skilningi sem þeir eru til í Svíþjóð. Sem raddir sem skrifa leiðara, meina ég – sem taka álitamál til umræðu, sem hafa sína eigin sýn á menningarmálin og vinna við að miðla henni. Ég veit ekki hvort nokkur hefð hefur verið fyrir þannig ritstjórum hér á landi – oft eru engir leiðarar, þegar það eru leiðarar eru þeir yfirleitt bara svona einsog í skólablöðum, upptalning á því efni sem er í blaðinu. Kannski er ég að gleyma einhverju.








