Ég hef verið að þýða dálítið upp á síðkastið og af sumu af því hef ég beinlínis óstjórnlega nautn. Sem mér hefur þótt forvitnilegt vegna þess að ég hef ekki alltaf – og kannski bara sjaldan – beinlínis nautn af því að skrifa sjálfur. Auðvitað verð ég stundum ölvaður af einhverjum hugmyndum sem mér þykja frábærar og af og til smellur bara allt – textinn flæðir út úr manni og maður hefur auga og skilning á öllum þráðum – og þá er maður voða glaður en það fylgir því alltaf líka ákveðin tilfinning sem mætti mín vegna kalla sjálfsvantraust. Grunurinn um að þegar víman renni af mér komi í ljós að þetta sé ekki gott. Kannski muni það koma í ljós þegar ég les það sjálfur eftir nokkrar vikur og kannski komi það bara í ljós þegar einhver lesandi/gagnrýnandi byrjar að fussa og það rennur upp fyrir mér að eitthvað hefur augljóslega ekki komist til skila. Og það er líka vinnan, að koma hlutum til skila, fegurðinni ef ekki öðru – með þeim fyrirvara þó að fólk getur auðvitað misskilið texta og ekkert sem maður skrifar skilar sér til allra sem það lesa (einu bækurnar mínar sem hafa aldrei fengið einnar stjörnu dóm á Goodreads eru þær sem enginn hefur lesið).
Ég hef ekkert gert í því að reyna að vinna mig út úr þessu sjálfsvantrausti vegna þess að ég hef talið mér trú um að það haldi mér auðmjúkum, maður þurfi að hafa innri ritstjóra sem hafi ekkert alltof mikla trú á manni, annars endi maður bara einsog einhver brosandi kjáni sem er eilíflega og innistæðulaust sannfærður um eigið ágæti. Ég held líka að það sé betra að eiga við viðbúna vanþóknun annarra ef maður veit sjálfur til hvers maður ætlaðist af sér – ef maður ræktar skírnareldinn líka í arninum heima.
Þegar ég þýði texta sem ég hef ást á sjálfur er ég augljóslega í þjónustu einhvers sem er gott – einhvers sem stendur utan við minn eigin hégóma, mína eigin dýrðarþrá – og þótt auðvitað sé hægt að klúðra þýðingum og til séu þýðingar sem ég beinlínis fyrirlít, og ég hafi sjálfur gert þýðingarmistök sem ásækja mig í svefni, þá er starfið einhvern veginn þess eðlis að ég treysti því að ef ég bara vandi mig nóg þá gangi þetta upp. Skáldahluti rithöfundastarfsins er ekki sama eðlis. Þar hefur það ekkert að segja að maður vandi sig. Eða jújú, auðvitað hefur það eitthvað að segja á tilteknu stigi málsins, en það dugir bara skammt. Það er leitin að galdrinum sem gerir mann vitlausan og rænir mann andlegri yfirvegun og brýtur mann niður – gerir það að verkum að stundum vaknar maður vikum saman ekki öðruvísi en sannfærður um að maður sé hæfileikalaus aumingi og loddari ofan í kaupið. Ekki endilega af því galdurinn láti á sér standa – þótt stundum sé það augljóslega þannig – heldur vegna þess að maður veit aldrei hvort hann er þarna í súpunni sem maður er að malla, hvort að það sé Hugsuður inni í grjóthnullunginum eða ekki, eða hvort þetta sé allt bara einhver blekking, einhver ölvun í hita leiksins. Og þegar ég segi aldrei meina ég fyrst og fremst mjög seint – oftast ekki fyrren svona 5-6 árum eftir að bókin kom út, kannski bara á grafarbakkanum.
En vönduð vinnubrögð við galdurslausa hugmynd bjarga sem sagt engu.
Það er svo margt í heiminum sem heimurinn ýtir að mér sem mér finnst ekki að komi mér við. Ég hef til dæmis enga skoðun á því hvort einhver amerískur sjónvarpsgrínisti hafi gengið of langt. Samt er ég að drukkna í skoðunum fólks á einu þannig máli. Mér gæti bara ekki staðið meira á sama. Ég get alveg haft áhuga á örlögum fólks eða listrænni aðferð og skömm og mörkum og sannarlega hefur mér oft þótt transgressjón sem slík áhugaverð – og ég hef tamið mér að hætta að tala um að „kýla upp“ og „kýla niður“ einsog fólk gerir jafnan þegar grín er annars vegar, af því grín snýst ekki um að kýla heldur hía og það er þrátt fyrir allt mikilvægur greinarmunur á þessu tvennu – en þetta SNL mál finnst mér alveg svona geispandi leiðinlegt. Ég ætla ekki einu sinni að rekja það fyrir ykkur ef þið þekkið það ekki. Væri miklu frekar til í að tala um Michael Richards – það var þó listamaður sem mér þótti einhvern tíma afar vænt um.
Ég lauk nýlega við Öld ímyndunaraflsins, The Autobiography of Red, Knutar+, ævisögu Noru Joyce og Lé konung, horfði á fyrsta síson af Cien años de soledad, heimildamynd um Sigga Björns, tvær stuttmyndir á PIFF (eina íranska og eina þýska, man ekki titlana) og spennutryllinn Nocturnal Animals. Hlustaði á nýjar plötur með Marsibil og Spacestation og smáskífur Purrksins, fór á myndlistarsýningu hjá Hallgerði Hallgrímsdóttur. Samanlagt fá þessi listaverk tæplega 50 stjörnur á Fjallabaksleiðinni.
Ég er enn ekkert búinn að gíra mig upp í æsing fyrir jólabókaflóðinu. Er að lesa Víti eftir Dante – mikið svakalega er þetta vel þýtt hjá Einari Thoroddsen og mikið er ég að velta fyrir mér teikningum Ragnars Kjartanssonar, undarlegt val, undarlegar myndir, ekki endilega verra, en undarlegt, og undarlegar líka sumar þessar neðanmálsgreinar – og Flann O’Brien, The Third Policeman, sem er í augnablikinu skemmtilegasta bók sem ég hef lesið (ég hef lesið hana áður og þá fannst mér hún ekki svona skemmtileg, sem er óskiljanlegt). Og svo á ég svo lítinn pening að ég fer varla að fjárfesta mikið í nýjum bókum. Reyni kannski að bókasafna hápunktunum þegar ljóst er orðið hverjir hápunktarnir eru! Strax og fyrstu slátranir eru komnar í hús. Kannski les ég bara þær bækur sem verður slátrað. Stundum eru það bestu bitarnir.



