Í dag verða veitt nóbelsverðlaun í bókmenntum. Af einhverjum orsökum hef ég alltaf áhuga á þessu þótt það sé í sjálfu sér sjaldgæft að einhver verði fyrir valinu sem beinlínis „höfðar til“ mín, þótt yfirleitt séu þetta eðlilega færir höfundar. Síðustu tíu árin eru það fyrst og fremst Fosse, Tokarczuk og Kraznahorkai – ekkert að Ishiguro, svo sem, og Dylan er Dylan, til hvers að hengja orðu á fjall, spurði Cohen – Glück er ágæt en kannski ekki á minni bylgjulengd, sama mætti segja um Gurnah, Annie Ernaux á eina bók sem mér finnst geðveik (Árin) en allt annað sem ég hef lesið finnst mér ógurlega þunnt. Han Kang valið skildi ég alls ekki. Jú, Handke – Markmaðurinn og Óskabarnið voru góðar (en það er mikið gefið út af góðum bókum í heiminum).
Hefðbundna giskið mitt síðustu árin er Duong Thu Huong, sem ég fór að lesa þegar við bjuggum um skamma hríð í Víetnam fyrir rúmum áratug. Áreiðanlega smá af því það giskar aldrei neinn annar sem ég þekki á hana, þótt hún sé reglulega á langa listanum. Þetta er víetnamskur höfundur, jafngömul pabba (fædd ‘47), barðist í stríðinu (gegn ameríkönum!), bjó í jarðgöngum í sjö ár, grjóthörð og einlægur kommúnisti – en eftir sameiningu landsins gerðist hún krítísk á ógnarstjórnina og skoðanakúgunina, ekki síst í listum, og gaf hvergi eftir í kröfum um lýðræði og réttlæti, loforð byltingarinnar (og kommúnismans), sem kostaði hana meðal annars fangelsisdóm á tíunda áratugnum. Þetta varð svo á endanum til þess að hún hrökktist úr landi og hefur búið í Frakklandi síðustu áratugi.
Hún skrifar stórar og miklar skáldsögur sem gerast í Víetnam – mín uppáhalds, sem heitir The Zenith á ensku, fjallar meðal annars um Ho Chi Minh, sem hún hefur vel að merkja töluverða samúð með og uppleggið í bókinni er eiginlega að hann hafi verið hálfgerður leiksoppur, bláeygur sakleysingi í höndum vélráðugra, fórnarlamb kerfisins, maður sem er fangi þess þjóðartákns sem hann hefur sjálfur orðið, og raunar er það þemað í mörgum hennar bókum, hvernig hugmyndafræði nær tökum á fólki og hvernig fólk manipúlerar hvert annað í nafni hennar.
Þetta eru orðmargar, ljóðrænar raunsæissögur fullar af kraftmiklu innsæi í mannlegt eðli sem annað en mjög mikið af þeim litteratúr sem við sjáum um Víetnam eru ekki bara um stríðið og um flóttafólkið – stríðið eða brottflutningurinn eru ekki alfa og omega eða eini lykillinn að því að skilja þetta stórkostlega land og fólkið sem þar á heima.
Á síðustu árum þegar fókus heimsbókmenntanna hefur verið að færast út fyrir Vesturlönd að einhverju leyti hefur hann yfirleitt farið á höfunda sem eru annað hvort enskumælandi menntamenn – og oft fluttir frá heimalöndum sínum – eða hreinlega til fólks sem er af annarri eða þriðju kynslóð innflytjenda. Þetta þýðir að t.d. nær allar víetnamskar skáldsögur við sjáum í bókabúðum hér norður í rassgati – sem eru sannarlega ekki margar – eða bara sem eru þýddar eða gefnar út af sæmilega stöndugum forlögum eru sögur fólks sem hefur dálítið aðra innsýn í heimalönd sín en gengur og gerist í löndunum sjálfum, oft dálítið harmræna og nostalgíska, dálítið fjarlæga. Svona einsog ef Halldór Laxness hefði verið fæddur og uppalinn í Gimli. Ég segi ekki að það sé skekkja, því sjónarhorn eru ekki skökk, þau eru bara manns eigin, en það er söknuður af hinu – og það fær maður hjá Duong Thu Huong.
Og af því ég var að tala um afkomu listamanna í gær. Á wikipediu kemur fram að Duong Thu Huong lifi á 20 dollara lífeyri á mánuði og sinni þýðingum til þess að draga fram lífið – það dregur ekkert úr stuðningi mínum við hana. Og hún er gersamlega hunsuð í heimalandinu – sem ég held þess utan að megi alveg við ákveðinni frjálsræðisbyltingu sem gæti fylgt nóbelsverðlaunum til höfundar einsog Duong Thu Huong. Ég held að aðstæður fyrir slíka byltingu séu líka með besta móti. Mín tilfinning er sú að víetnömsk stjórnvöld myndu taka hana í sátt og hampa henni við þetta, til þess að geta grobbað sig, og láta einsog þau hefðu aldrei gert annað, og bækurnar myndu svo tala sínu máli.
Af þeim sem eru í efstu 25 sætunum hjá Betsson hefði ég líka áhuga á Cesar Aira – hann er fagurfræðilega ólíkur mörgum sem hafa fengið þessi verðlaun, skrifar stuttar og æsilegar sótthitasögur sem geta einhvern veginn farið hvert sem er, og þar sem hvað sem er getur gerst, skrifaðar af ofsa – Pynchon, Mariana Enriquez og Ko Un (jájá, ég veit). Anne Carson er ofarlega og ég hef aðeins lesið hana en ekki alveg náð taki – Sjón nær ekki svo hátt á lista en ég myndi sannarlega klappa manna ákafast fyrir honum. Svo er auðvitað haugur sem ég hef bara ekkert lesið og kannski væri það skemmtilegast ef verðlaunin féllu í skaut einhverjum sem maður gæti svo uppgötvað.
En ef ég ætti að leggja alvöru pening undir – sem ég geri ekki, ég gæti alveg veðjað við vin eða kunningja, en veðmálaiðnaðurinn er viðbjóður – myndi ég skjóta á að Bob Dylan fengi þau bara aftur. Tíu ára anniversary nóbel. Þið lásuð það fyrst hér.



