
Leifsstöð. Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þið megið kalla þetta hvað sem þið viljið – t.d. KEF – en ég segi Leifsstöð. Ég man hvað mér fannst spennandi að koma hingað þegar ég var lítill. Í fyrsta skipti sem ég kom hingað án foreldra minna mætti ég alltof snemma – fluginu var svo seinkað um fleiri klukkustundir svo ég endaði á að hanga hér með vinum mínum í rúmlega vinnudag. Og naut hverrar mínútu. Samt var ég hvorki með tölvu né síma og ekki einu sinni bók og hafði ekki aldur til að drekka bjór. Svona var maður nú nægjusamur.
Ég ætlaði að borða morgunmat á Jómfrúnni en missti geðheilsuna við að reyna að eiga við QR-kóða afgreiðsluna – og það þýddi ekkert að veifa starfsmanni, sem var bara upptekinn við að spjalla við annan starfsmann. Fór á Elda. Pantaði mér vitlausan morgunmat (continental en ætlaði að fá „Elda Breakfast“ – kvartaði meira að segja en þetta reyndist 100% mér að kenna, ég kann bara ekki að lesa og ætti auðvitað ekki að fá að panta morgunmat fyrren ég er búinn að fá kaffi).
Ég hef tekið eftir því að það er aftur að verða algengara að maður fái eða geti fengið afgreiðslu á íslensku. Starfsfólkið virðist samt af málrómnum meira og minna af erlendu bergi brotið en það er bara búið að læra málið – eða nóg til að díla við kúnna og matseðla.
Í gær hitti ég ungverskan vin minn, ljóðskáldið Peter Zavada, á Kaffi Vest. Hann er ekki kominn til að læra íslensku heldur bara dandalast og ljóða svolítið. Við rákumst líka á Sjón og son hans, Flóka. Annað gerði ég ekki í Reykjavík – jú, ég keypti teketil! – en svo keyrði ég beint til Keflavíkur, svaf þar í nótt.
Það var tónleika og bíóvika hjá mér. Horfði á Bird – Charlie Parker mynd Clints Eastwood – og Almost Famous með Aram. Við fórum svo saman á bæði tríó Sölva Kolbeins (hinir eru Magnús Trygvason Eliassen og Hilmar Jensson) í Edinborgarhúsinu og Purrk Pillnikk á Vagninum á Flateyri. Bæði mikið fyrirtak og sennilega væri þessi röð viðeigandi fyrir mann sem ætlaði að trylla sér út í nóttina – ýlfra á tunglið – en fyrir tæplega fimmtugan karl hefði farið betur á að byrja á brjáluðu pönki og enda svo í framúrstefnudjössuðu hljóðbaði fyrir háttinn. Þá held ég maður hefði sofið vel. Ég náði að taka í höndina á Sölva, Braga Ólafs og Sigtryggi.
Síðasta lag Purrksins var Vond orð og þá bað Einar alla um að leggja vond orð í púkkið. Aram var mjög hneykslaður á öllum vondu orðunum sem fólk valdi (sérstaklega finnst honum áhrifavaldur flott orð – ég er sammála því). En þegar ég kvaddi Braga sagði ég „sjáumst í stríðinu“ og ég sá strax fyrir mér að þetta hefði getað farið í hauginn, getað verið eitt af vondu orðunum (sum orðin voru setningar). Eiginlega keyrði ég hálfhnípinn úr bænum vegna þessa. Hræðilegt að kveðja (kvelja?) kollega sinn með vondum orðum.
Ég er með of margar bækur í gangi. Er að treina mér seinni hluta fimmta kafla Portrait of the artist (sem ég hef auðvitað marglesið). Hálfnaður með ævisögu Noru Barnacle. Kominn þriðjung inn í Illionskviðu þýðingu Emily Wilson (kannski er það þess vegna sem ég sagði þetta með stríðið við Braga?). Og er að „skoða“ frekar en beinlínis lesa bókina La Machine eftir George Perec. Þetta er svolítið skrítin bók, einsog má ímynda sér – maður þarf ekki annað en að sjá mynd af Perec til að fatta að hann skrifar skrítnar bækur. Bókin kom fyrst út sem útvarpsleikrit á þýsku og ef ég er ekki að misskilja frönsku útgáfuna mína þá á þýski þýðandinn og góðvinur Perecs – Eugen Helmlé – heilmikið í verkinu og Perec segir sjálfur í bréfi að nú hafi honum tekist að skrifa heilt verk á þýsku, hann sem kunni ekki stakt orð í málinu – ef ég skil þetta rétt þá sem sagt kom hann fram með ákveðnar leiðbeiningar og Helmlé framfylgdi þeim. Hins vegar er verkið líka víða skráð þannig að þetta sé franskt verk sem Helmlé hafi einfaldlega þýtt. Á frönsku þýðingunni – sem þær gerðu Valentin Decoppet og Camille Bloffet – er Helmlé skráður meðhöfundur.

Allavega. Bókin – sem var fyrst útvarpsleikrit, 1968 – er skrifuð frá sjónarhóli tölvuforrits sem er að fara í gegnum Wandrers Nachtlied eftir Goethe. Telja orð, atkvæði, greina rím, þemu, merkingu og svo framvegis. Þetta verður bilaðra og bilaðra eftir því sem á líður – tölvan þarf stöðugt að leiðrétta sig (über? spyr hún í textavenslunum og fer að tengja við über alles t.d. en þarf þá að byrja upp á nýtt, afvegaleidd).
Bókina gaf Nadja mér í afmælisgjöf. Hún er bæði erfið og auðveld aflestrar. Franskan mín er auðvitað ekki frábær – og ég myndi sennilega misskilja/ekki-skilja jafn mikið á þýsku – og framúrstefnuformið og endurtekningarsamt forritunarmálið gera þetta bæði auðveldara og erfiðara.
Jæja. Þarf að fara til Svíþjóðar. Stokkhólmur í nótt. Á morgun tek ég svo lestina til Umeå og rútuna til Skellefteå. Hinn tek ég aðra rútu alla leið til Jäckvik norður í rassgati. Þar bíður mín bókmenntahátíð. Í bænum búa 32 – mér sýnist á dagskránni að það verði fleiri höfundar en íbúar.

