
Veit einhver hvar ég gæti fengið einsog 100 k´íló af hreinu kókaíni? Má vera aðeins minna eða aðeins meira.
***
Annars hef ég líka verið að velta fyrir mér þessum langreyðarbesefa og besefanum sem veifaði langreyðarbesefanum framan í myndavélarnar og viðbrögðin – þetta var kannski ekki til fyrirmyndar en ég er ekki heldur alveg viss um að þetta feli í sér endalok siðmenningar. Og það er einsog það hafi líka alveg gleymst í allri umræðunni að það er í Reykjavík heilt safn, vinsælt ef ekki hreinlega rómað, þar sem besefar af öllum mögulegum tegundum eru til sýnis. Það best ég veit er þeim að vísu ekki veifað.
Já og til að bíta höfuðið af skömminni þá finnst mér þessi frekjuorka í þeim Watson og Loftsson báðum álíka þreytandi og til lítillar eftirbreytni.
***
Ég sótti drenginn minn á flugvöllinn í gær og hann verður heima í rúman mánuð. Það er allt betra þegar hann er hérna, jafnvel þó hann sé bara uppi í herberginu sínu að hanga í tölvunni – ég er aðeins heilli þegar hann er nærri en annars. Ekki þar fyrir að hann verður að fá að fullorðnast í friði – ég ætla ekki að læsa hann inni. Hann fær að fara aftur til Svíþjóðar í ágúst.
***
Ég er mikið búinn að hugsa um a) döbbanir á ensku og b) lúpínuna síðustu daga. Bæði af hálfgerðri áráttu sem er ekki holl. Ég er að reyna að skilja lúpínuna. Og afstöðu fólks til hennar. Ef hún er ágengt krabbamein í náttúrunni, einsog mér finnst ég heyra fólk halda fram, hvers vegna er þá einsog það sé ekkert gert í þessu lengur? Einhvern tíma var verið að gera tilraunir með að slá hana. Gefst hún upp eftir 15-20 ár einsog ég las einhvers staðar? Og er kerfillinn eitthvað skárri eða fáumst við bara ekki við honum vegna þess að ... er hann innlendur? Eða er það af því hann er ekki alveg jafn áberandi – breiðurnar kalla ekki á mann úr fjöllum langt í burtu. Og af hverju vex lúpínan svona undarlega – stundum er einsog breiðurnar fari í beinni línu upp fjall, kannski alveg autt öðru megin við hana, bara melur sem bíður þess eins að fá lúpínufræ, sem lúpínan heldur aftur af. Breiðurnar eru sérstakar í laginu.
***
Áráttan fyrir döbbinu er ekki komin til af góðu. Á Ísafirði er nýhafið verkefni sem heitir Spólað til baka þar sem eru sýndar gamlar myndir – það er sérstök áhersla á að fá ungt fólk til að mæta (allir fæddir 2000 eða síðar fá frítt inn). Ég fór á Sódómu fyrir mánuði, La Haine í síðust viku – ótrúleg forréttindi að geta séð svona í bíó (ég sá báðar á v´ídjóspólu á sínum tíma). Og næst er Run, Lola Run, sem Smári vinur minn benti vinsamlega á (í fb-grúppunni) að héti auðvitað Lola rennt – þetta er þýsk mynd – en svo kom í ljós að Run, Lola Run var eiginlega rétt, af því það stendur til að sýna hana döbbaða á ensku með enskum texta að auki. Af því ein enska er ekki nóg. Þetta er víst gert að uppástungu nemendafélags menntaskólans – sem töldu að með þessu móti myndi fleira ungt fólk mæta. Og allar myndir þar sem döbbun er í boði verða döbbaðar á ensku – ég er búinn að gúgla næstu myndum og það er ekki til ensk döbbun á Fucking Åmål en það er til ensk döbbun á Cinema Paradiso, sem verður síðar í ár (kannski gerir skipuleggjandinn, sem er ítalskur, undantekningu – maður getur alltaf vonað).
Minn persónulegi smekkur er að döbbanir séu yfirgengilega hallærislegar svona almennt – þegar ég átti heima í Þýskalandi passaði ég mig á að það stæði alltaf „Orginalverfassung“ í auglýsingunni. Og ég veit ekki hvað mér þætti ef myndin væri döbbuð á íslensku. En þetta er ekki bara fagurfræðilegt spursmál heldur líka félagslegt og pólitískt. Það eru börn og unglingar í bænum sem eiga íslensku að móðurmáli en velja að tjá sig hvert við annað á ensku. Af því að enska er best. Það eru staðir þar sem matseðlar eru bara á ensku, staðir sem heita bara enskum nöfnum – innflytjendur sem kunna ekki ensku þegar þeir koma til landsins læra fyrst ensku og svo (kannski) íslensku. Þetta ýtir enn frekar undir þá heimspeki að enskan sé, einsog þeir segja, „über alles“. Og þetta er náttúrulega styrkt af bænum – og reyndar menntaskólanum líka, sem kennir þýsku!
En þetta er ekki mitt prójekt og sá sem vinnur vinnuna ræður þessu. Ég yrði reyndar hissa ef að nemendur sem ekki þola að horfa á kvikmynd á þýsku, textaða á ensku, þoli að horfa á döbbaða leikna mynd – það er sannarlega eitthvað sem maður þarf að venjast. Þegar til kastanna kemur altso. Ég held þeir spari sig bara fyrir næstu Marvelmynd. Og hinir missi af tækifærinu til þess að heyra eitthvað annað en ensku.
***
Annars er ég líka meðvitaður um að bæði lúpínuáráttan og döbbáráttan eru komnar til út af einhverri togstreitu – ég er með og á móti lúpínunni í senn; og ég er með Spólað til baka en miður mín yfir þessu döbbrugli. Og þá skapast einhver óróleiki í sálinni á mér sem gerir það að verkum að í klukkustundarlöngum hlaupatúr hugsa ég kannski ekki um neitt annað. Sem er alls ekki hollt – og hefur hvorki að gera með lúpínur eða döbbaðar kvikmyndir og bara 100% um mig.
***
Ég tek til baka allt sem ég sagði um síðustu þáttaröð Euphoria. Síðustu tveir þættirnir voru hræðilegir og þetta endaði gersamlega úti í skurði. Og kannski gerði síðasta þáttaröðin ekki annað – við nánari skoðun – en að undirstrika hvað þetta var sundurlaust allan tímann.
***
Ég minni á kókaínfyrirspurnina hérna efst. Ég er, af ástæðum sem óþarfi er að fara út í, alveg ren.

