
Það er svo undarlegt að þegar ég skulda ríkinu peninga greiði ég vexti þegar ég svo skila mínu, en þegar ríkið dregur það dögum saman að borga mér laun þá fylgja því engir vextir.
Í annað skiptið í ár er sem sagt eitthvað rugl á bókhaldskerfinu og því hefur enginn fengið greidd listamannalaun í þessu landi (það best ég veit). „Verður vonandi komið í lag fyrir helgi“. Og hefðum þó öll eðlilega átt að fá greitt fyrir síðustu helgi. Ég lifi einsog aðrir í mínum geira frá einum launatékka til þess næsta en er þó ekki jafn illa staddur og einhvern tíma í lífinu að það sé líka allt annað í botni – fyrir kannski 15 árum hefði ég verið farinn að slá einhvern um lán fyrir mat. En ég er augljóslega ekki búinn að borga af lánunum – nú eða borga skattinn.
Annars er haft fyrir satt að þar sem saman komi fleiri en einn andans maður – einsog t.d. hér á þessu kúltíveraða bloggi – sé fljótt farið að tala um peninga. En þar sem aurasálirnar komi saman – að loknum gróða, í góðu grilli – sé farið að tala um bækur. Það er samt ábyggilega bara Jordan Peterson.
Ég átti 24 ára útgáfuafmæli í vikunni. Annað hvort 1. eða 2. ágúst 2002 komu Heimsendapestir út hjá Nýhil. Verandi 48 ára er þetta þá hálf ævin sem er undir. Hvort henni var vel varið verður einhver annar að dæma um. Á næsta ári er þetta sem sagt aldarfjórðungur og varla nema í allra besta falli annar slíkur eftir – og væntanlega (ef litið er til tölfræðinnar) ekki nema 1/3 bókanna. Upp úr þrítugu hélt ég því fram að nær allir rithöfundar skrifuðu sínar bestu bækur á bilinu 35-55. Ég held að helstu undantekningarnar séu höfundar sem annað hvort byrja seint eða hætta snemma – en þetta er vel að merka mjög ábyrgðarlaust gisk allt saman og byggðist sennilega á sínum tíma á einhverri tilfinningu fyrir því að ég væri enn að bíða eftir sjálfum mér, og jafnvel að sýna mér þolinmæði, hvetja mig áfram.
Mig langar að gefa út ljóðasafn á næsta ári. Heildarsafn sem sagt. Er það ekki ágæt leið til þess að fagna 25 árum in business? Það er auðvitað engin eftirspurn eftir slíku frekar en öðrum ljóðabókum – og þetta er mjög „sundurlaust“ safn, svona fagurfræðilega, mikið af mjög skrítnu framúrstefnudóti í bland við alls óskylda rómantík og pólitískar yfirlýsingar, tækifærisljóð og einkabrandara. Og kannski er engin ástæða nema í besta falli sagnfræðileg að hafa þetta collected frekar en selected – tilraunaljóð eru eðli málsins samkvæmt oft misheppnaðar tilraunir og æskuljóð eru æskuljóð og þessi þroski sem kemur með árunum er nú ekki beinlínis alltaf þokkafullur. Ú á fasismann - á það heima þarna? Sumt af því er bara mjög léleg grafísk hönnun, frekar en myndljóð, svona eftirá að hyggja. Handsprengja í morgunsárið eða önnur samstarfsverkefni? Ástarljóð og afmæliskvæði? Flarf á ensku? Þýðingavélafikt frá upphafi aldarinnar? Hljóðaljóð – collage einsog Úr órum Tobba sem er eiginlega vonlaust á prenti? Ég óttast bara að færi ég að skera niður myndi ég á endanum komast að þeirri niðurstöðu að þetta sé allt jafn ómerkilegt. Að í stað þess að segja alltaf færri og færri orð, færi ég að fjarlægja fleiri og fleiri orð – væta í púðrinu – og til hvers væri maður þá að þessu (nú er ég alveg korter í að segja ykkur bara að eiga þennan helvítis tjakk).
Annars er einhver luðra í mér. Það stendur vonandi til bóta.

