
Ég er sennilega mjög trúr þýðandi. Ekki að ég hafi lúslesið og borið saman margar þýðingar. En eðlisávísunin býður mér að vera frekar trúr frumtextanum en því sem ég skil sem málfarslegar klisjur markmálsins. Ef ég get þýtt orðasamband þannig að það skiljist – og það skiljist að það sé orðasamband – þá held ég því frekar en að finna annað íslenskt sem nær því næstum því. Undantekningin er kannski ef orðasambandið er eitthvað fáránlega algengt – eitthvað sem er nánast „ósýnilegt“ í texta. Einsog „sigla í kjölfarið“ eða eitthvað álíka.
Ég geri líka allt sem í mínu valdi stendur til þess að stytta ekki langar setningar. Eða rétta af kaos. Kaos er frábært – setningar sem krefjast þess að maður sé vakandi á meðan maður les þær eru frábærar. En gallinn er reyndar sá að gagnvart prófarkalesurum og ritstjórum leyfist manni miklu meira kaos – fjölskrúðugra lífríki – í eigin texta en í þýðingu. Það er miklu ríkari krafa um að þýddur texti sé á „normalíseraðri íslensku“. Og það er erfiðara að standa á „sínu“ þegar maður er að þýða – þegar maður er í a.m.k. einum skilningi þjónn textans frekar en meistari.
Mér finnst líka alltílagi og oftar kostur en löstur að frummálið sjáist í gegn. Maður er ekki bara að flytja með sér sögu í þýðingu heldur einnig tungumál – og öll tungumál eru aðferðir til þess að hugsa í sjálfum sér.
En svo get ég líka alltíeinu séð mér ástæðu til þess að henda inn einhverju smáræði. Það stendur kannski „lengi“ en ég skrifa „í háa herrans tíð“ af því senan er að gerast eftir messu og það er margt í þeim dúr í textanum – og kannski eitthvað sem ég hef þurft að skera út. Svo þetta er ekki alveg einhlítt heldur.
Svo er grófþýðingin líka tækifæri til þess að leyfa sér. Að skapa og prófa. Það er auðveldara að draga úr því í ritstjórnarferlinu en að lenda í nokkurs konar leiðslu aftur. En maður á að vera djarfur og fastur fyrir.
Ég nota gervigreindina heilmikið til að slá upp orðum. Það er af nokkrum ástæðum – í fyrsta lagi innihalda sænskar orðabækur aðallega orðin sem ég kann. Þegar ég rekst á orð sem ég kann ekki þarf ég að finna merkingu þeirra annars staðar (og reyndar eru þá sænsk-sænskar orðabækur á netinu ágætar – orðalisti akademíunnar). En svo nýtist hún ekki síst til þess að ýta við heilanum í sjálfum mér – að kveikja ljós í réttum klefa. Hún kemur sjaldnast með lausnina en hún hnitar nógu nálægt henni til þess að stytta mér leiðina.
Þar á eftir nota ég svo orðabækurnar tvær sem standa alltaf opnar á skrifborðinu mínu – Íslenska orðabók og Samheitaorðabókina. Mér hefur ekki gefist vel að nota öll þessi orðasöfn á netinu – ætli ég opni ekki islex oftast? En málið og m.is og það allt saman - mér finnst einsog ég sé alltaf að lenda á sitthvorri síðunni og kemst aldrei inn í að nota viðmótið. Auk þess kemst ég þá upp með að hafa færri glugga opna. Og orðabækur eru líka svo miklar fjársjóðskistur – maður er alltaf að rekast á eitthvað sem maður var ekki að leita að þegar maður rótar í þeim.
Á venjulegum degi á skrifstofunni er settöppið sem sagt: 1) Fartölva með 2-3 opna glugga (að jafnaði gervigreind, islex, google) 2) Borðtölva með tvískiptum skjá, handrit öðrum megin, pdf af bókinni hinumegin 3) Íslensk orðabók 4) Samheitaorðabók.
Þegar ég þýddi Ginsberg á sínum tíma – það var fyrsta þýðingin mín – var ég netlaus með fartölvuhlunk með biluðu batteríi og varð að vera í sambandi við rafmagn, ensk-enska orðabók og norska þýðingu á ljóðum hans til samanburðar og Howl Annotated. Og sennilega var þá mikilvægast að vera með djúpan öskubakka og eiga nóg af kaffi. Það var ekki verra líf en það var öðruvísi. Og ég var alltaf umkringdur fólki í stofunni þar sem ég sat – og þetta fólk var gjarnan orðið fullt um miðjan dag og farið að vera með læti.

