
Mér er farið að leiðast mjög að nota lesgleraugu. Ekki vesenið – að týna gleraugum, gleyma gleraugum, beygla gleraugu – heldur að sjá illa og vera alltaf að skipta á milli gleraugnasjónar og venjulegrar; það er einsog heilinn í mér vilji ekki skipta, eða augun, fókusinn er lengi fram og aftur og ég er alltaf með höfuðverk að bíða eftir því að sjá. Ég var reyndar mikið með höfuðverk áður líka en þetta hefur sem sagt aukist. Mígreni light, kalla ég þetta stundum – ég greini mig alltaf bara með diet útgáfur af öllu, diet árátturöskun, diet einhverfu, diet mígreni og svo er ég auðvitað með diet sjóndepurð líka. Það er ekkert að mér sem gott spark í rassgatið gæti ekki lagað. Ein íbúfen. Góðir ávanar.
Ég á afmæli. Ég er fjögurra tylfta gamall. Steikti mér guanciale í morgunmat af tilefninu, bar það fram með tveimur blæjueggjum og bakarabollu og smá salati og tómat. Ég er einn heima, allir í Svíþjóð. Fer í mat til mömmu og pabba á eftir. Og á morgun sæki ég Aram í Keflavík.
Vinn og ligg í leti. Er búinn að vera að horfa á Euphoria. Lengi framan af var þetta til skiptis skemmtilegt og leiðinlegt. Einsog það rynni alltaf út í eitthvað Beverly Hills 90210 af og til – nema með standpínum. Sennilega er mest af typpum í fyrstu þáttaröðinni. Ég var eitthvað að reyna að rifja það upp hvort ég hef nokkurn tíma séð kvenmannssköp í meinstrím sjónvarpsefni. Altso, kynfærin sjálf, ekki bara hárbrúska – af þeim sá maður alltaf nóg þangað til að konur fóru að sléttraka sig og síðan þá eru það bara brjóst af því hitt er sennilega síðasta vígið. Ekki að það vanti meiri nekt í þetta – hún er alls ekki það mest spennandi hérna. Ég sá einhvers staðar að fólki er uppsigað við þriðju þáttaröðina – það líða 3-4 ár á milli og hún er í allt öðrum gír, en ég er ekki frá því að m´er finnist hún best. Kannski er það bara af einhverri þörf til þess að skila sératkvæði. Ég vil líka halda því til haga að Sydney Sweeney er alls ekki slæm leikkona – hún er með sitt register og hún hefur sannarlega líka leikið léleg hlutverk en það á við um langflesta leikara, mjög fáir sem eru færir um að skila góðri framúrstöðu upp úr lélegum hlutverkum. En þetta er bæði sápuópera og sirkus. Mér finnst hann bara skemmtilegri utan menntaskólaumhverfisins.
Fer mjög hægt í gegnum ævisögu Noru (Barnacle / Joyce) eftir Brendu Maddox. Eiginlega er þetta mest um James samt. Það hlýtur að vera erfitt þegar heimildir um hann eru svona yfirþyrmandi en heimildir um hana eina og sér af skornum skammti – og það sem er áhugaverðast við hana er sjónarhorn hans á hana. Sem þýðir ekki að hún hafi ekki verið frábær manneskja og það allt en hún er bara innvikluð í stærstu bókmenntaverk tuttugustu aldarinnar, sem fyrirmynd og músa, og því fer sem fer.
Í gær var La Haine í Ísafjarðarbíói. Diego Ragnar er með dagskrá sem heitir Spólað til baka þar sem sýndar eru gamlar myndir. Það eru reyndar líka sýndar gamlar myndir á Þingeyri, þær eru úr kvikmyndasafni Íslands, en þetta eru svona útlenskir klassíkerar (Sódóma var reyndar fyrst). Lola rennt er næst. La Haine var rosaleg – minnti mig á À bout de souffle eftir Godard með öðruvísi ólátabelgjum og engri ástarsögu. Og Play eftir Ruben Östlund. Og svona karlmennskumyndir, myndir um vináttu manna sem eru mismiklir fávitar og krefjast mismikillar þolinmæði. Og myndina um matarsendilinn og hælisleitandann Souleymane sem var á frönsku kvikmyndahátíðinni.
Annars horfði ég kvikmyndadóm á YouTube í vikunni sem fjallaði um Jackass myndina – formattið var gagnrýnandi að tala við vin sinn og gagnrýnandinn var hrifnari af myndinni en vinurinn og sagði að hún væri um vináttu karlmanna og hvað væri erfitt að vera vinir, ef maður væri karlmaður, ef maður heftaði ekki pungana á sér saman eða træði fingrunum upp í rassgatið hver á öðrum (veifaði langreyðarbelli framan í þá). Vinurinn sagði að þetta væri kjaftæði, karlar gætu bara verið vinir með því að fara saman út að fá sér bjór eða eitthvað. Sem ég held að sé alveg satt. En þetta er samt skrítið bræðralag, þetta Jackass bræðralag (það kom fram í dómnum að þeir hefðu í myndinni étið laxerandi, vafið sig plasti og farið í twister og það hefði allt orðið vaðandi í niðurgangi og mér fannst það svo ólystugt að ég ákvað að fara ekki í bíó það kvöldið).
Já og svo er nýja lagið með Moses Hightower og Kött Grá Pje skemmtilegt. Einsog kemur engum á óvart.

