Ætli ég verði ekki smá stund að venjast þessu Substack? Ég er búinn að færa hér inn allar færslur fram að síðasta ágúst – annað glataðist, so what, spyr ég mig, ekki er ég að yrkja hér Liljur alla daga. Ég er samt hrifinn af arkífum. Þær kveikja eitthvað í mér.
Ég á eftir að finna leið til þess að merkja Ulysses færslurnar sérstaklega, ég vil að þær sé hægt að finna á einum stað.
Svo þarf ég að muna að lesa þetta almennilega yfir áður en ég pósta núna. Substack færslur fara til áskrifenda í tölvupósti. Ég hef haft þann vana/ávana að skrifa þessar færslur fremur hratt, pósta og lesa svo í gegnum þær og leiðrétta og lagfæra 1-2 tímum síðar. Ég lagfæri augljóslega ekki neitt í póstboxum landsmanna.
Ég fór á Digger í gærkvöldi. Hún fékk núll stjörnur einhvers staðar, kannski í Dagens Nyheter, það er eini dómurinn sem ég hef séð – eða, ég sá bara fyrirsögnina og ákvað strax að þetta væri eitthvað fyrir mig. Mér skilst auk þess að þetta sé verst sótta mynd Tom Cruise frá upphafi. Sem æsti mig bara meira upp. Núll stjörnu mynd sem almenningur forðast er augljóslega ekki eitthvað fágað meðalmennskukjaftæði. Og það stóð líka heima. Digger er fagurfræðilega kjörkuð og tekur áhættur sem ganga ekki almennilega upp, svo ég tali alveg svona erkiklassískt gagnrýnendamál, og það eitt og sér er dásamlegt á tímum sem einkennast af fagurfræðilegu hugleysi. En að sama skapi er Digger með ógurlega stóra sál, einsog maður segir – alveg gígantíska – og á köflum er hún svo stórkostleg að mann svimar. Ég veit ekki hvort ég hef nokkurn tíma séð leikara fara öðrum eins hamförum og John Goodman í Digger. Tom Cruise er líka frábær og mónólógarnir hans eru einhvers konar hárnákvæmur hræringur úr algerri siðblindu og grjóthörðum sannleika.
Það hjálpar svo auðvitað að við skulum búa í hálfgerðum Strangelove veruleika þar sem menn einsog Digger eru að verða hversdagslegur raunveruleiki – ógurlega, óstjórnlega, óbærilega vellauðugir menn, menn sem eiga fleiri milljarða en millistéttarmaður á krónur, sem líta í senn á sig sem Jesús endurborinn og self-made mógúla sem byrjuðu með ekkert nema hörkuna og eina skóflu (fyrir þremur kynslóðum), og einhvers konar ofursnillinga sem sjái í gegnum allt kjaftæðið. Svona menn sem ganga fyrir hreinu og ómenguðu sjálfstrausti sem skelfir alla í kringum þá og fyllir samtímis aðdáun.
En það eru líka level í myndinni sem ganga ekki alveg fagurfræðilega upp. Það eru tvær sögur og þótt önnur sé minni og varpi áhugaverðu ljósi á þá stærri þá er hún jarðbundnari (en samt dystópísk!) og ræður ekki við að keppa við farsann. Einfaldlega af því þar er miklu hærra stillt í græjunum. Auk þess að varpa nýju ljósi á stærri söguna gæðir hún hana líka ákveðnum distans og í restina hækkar hún reyndar hitastigið á öllu – the show must go on – og auðveldar Iñarritu að búa til endi á stóru söguna sem er ekki allsendis týpískur (á sama tíma og hann er leikur að klisju – en leikur sem hefði verið mjög ófullnægjandi ef við hefðum ekki haft aukalagið).
Allavega. Þetta er svo spoilerlaus rýni í myndina að þeir sem hafa ekki séð hana vita sennilega hvorki upp né niður hvað ég er að fara. En ég nennti heldur ekki að rifja upp söguþráðinn og fór á hana sjálfur án þess að vita neitt. Ég mæli með henni. Og mér finnst að John Goodman eigi að fá óskarsverðlaun.
Ég las End Times Fascism á dögunum. Naomi Klein og Astra Taylor pæla sig í gegnum heimsendadaður trúarleiðtoga, pólitíkusa og kaupsýslumanna. Þær reyna að enda bókina á jákvæðum nótum, á voninni, einsog við var að búast, en eiginlega stendur maður upp frá þessu viss um að öllu sé að ljúka og því sé að ljúka vegna þess að fólkið sem vélar með veröldina hafi bókstaflega áhuga á að því ljúki, eða sé í allra besta falli alveg sama. Digger hafði áhuga á að bjarga veröldinni þegar allt var að farast en Musk og Trump og Thiel og kompaní ætla bara í bönkerinn á meðan restin brennur upp – nú þegar gervigreind og róbótavæðingin er svo gott sem farin að uppfylla þarfir þeirra jafnvel og þrælaherinn sem byggir plánetuna verður okkar ekki þörf lengur. Hvorki þeirra sem vinna við að búa til draslið eða okkar sem vinna við að kaupa draslið – sem er það sem við hérna megin í efnahagsjöfnunni gerum, við kaupum, við færðum iðnframleiðsluna mest eitthvert annað, og nú vinnum við við að sirkúlera peningum og uppfylla þarfir okkar, eyða peningum í að verða besta útgáfan af sjálfum okkur (og á þeim nótum sá ég auglýst gusumeistaranámskeið á helginni, með alvöru gusumeistarameistara, fyrir þá sem hafa áhuga, litlar sextíu þúsund krónur og sennilega borgar verkalýðsfélagið þetta fyrir þig).
En sem sagt, það ferst, það ferst. Trúarleiðtogarnir eru að bíða eftir endurkomu eða frumkomu frelsarans, eftir því hvort þeir eru kristnir eða gyðingar, og pólitíkusarnir eru annað hvort sjálfir vellauðugir kaupsýslumenn eða á mála hjá slíkum. Fá kannski sæti í bönkernum. Sæti í skutlunni til Mars.
Tom Morello úr Rage Against the Machine og Kneecap gáfu út lag á dögunum. Þar er viðlagið „Let the rich go / colonize mars / I prefer the gutter / looking up at the stars“. Ég veit ekki hvort það er málið, en það má í það minnsta dilla sér við þetta.



