Í dag er alþjóðlegur dagur þýðenda, kenndur við biblíuþýðandann heilagan Híeronymus. Ég gúglaði Híeronymusi til að vera viss á stafsetningunni – hvort venjan væri að skrifa Híró eða Híeró – og þá kom upp að heilagur Híeronymus væri líka þekktur á íslensku sem „heilagur Hróður“. Þetta hafði ég ekki heyrt áður en áttaði mig þó á því að -nymus hlutinn væri „nafn“ og kannski væri hieró „togaður“ og saman væri þetta kannski „nafntogaður“. Svo minnti mig í augnablik að þýðendaverðlaunin sem forseti Íslands veitir þýðendum úr íslensku yfir á önnur mál hétu „Hróður“ en þau heita víst Orðstír. Allavega var ég forvitinn og gúglaði þessum heilaga Hróði og þá kom upp að „heilagur hróður“ væri þýðing á enska orðatiltækinu „holy guacamole“. Sem rímar ekki einu sinni.
Allt var þetta auðvitað í boði gervigreindarinnar, þótt ég geti staðfest að hierónymus þýðir „ber helgt nafn“, sem er kannski ekki mjög langt frá hróðri. Eða orðstír. Híeronymus er stundum útlagt Jerome á ensku eða Geronimo, sem er ítalska útgáfan, en þekktust sem auknefni apache frumbyggjans Goyyale – frumbyggjanafnið þýðir víst „sá sem geispar“ en Geronimo var þekktur fyrir slíkt fádæma hugrekki að á endanum varð nafnið sjálft að hálfgerðu stríðsópi, eitthvað sem menn æptu upp yfir sig þegar þeir ætluðu að gera eitthvað mjög hættulegt. Er sagt að í einni orrustu hafi Goyyale farið fram að slíku offorsi að mexíkönsku hermennirnir sem hann slátraði einum af öðrum hafi farið að ákalla heilagan Híeronymus. Sem kalla mætti verndardýrling þýðenda mín vegna, þótt sennilega sé hann það ekki. Í dag þegar fólk ætlar að gera eitthvað mjög hættulegt hrópar það „hólí gvakamólí!“
Ég á marga þýðendur og á þeim margt og mikið að þakka. Á þýska málsvæðinu einu saman á ég sex þýðendur og hafa þó bara komið út þrjár bækur eftir mig á þýsku – en það voru tveir á hverja bók. (Sem er svolítið einsog að grobba sig af því að tvær bækur eftir mig hafa komið út á dönsku og bæði forlögin fóru beint á hausinn, sem ég geri reglulega – ég sprengi af mér þýðendur og set forlög á hausinn). Tveir í Frakklandi, tveir í Grikklandi og tveir í Svíþjóð. Og svo einn í mörgum löndum. Sumt af því fólki hefur orðið góðir vinir mínir og aðra hef ég aldrei hitt, við suma hef ég jafnvel ekki átt í neinum samskiptum.
En ég er líka þýðandi sjálfur og sérstaklega í ár – og á næsta ári, ef allt fer að áætlun – er ég meiri þýðandi en ég hef verið lengi. Ég hef stundum verið spurður hvort ég hafi byrjað sem ljóðskáld eða rithöfundur og jafnan svarað því að ég hafi eiginlega byrjað á báðu samtímis og við það má bæta þýðingum, ég hef verið að þýða a.m.k. frá því ég hóf að taka bókmenntir alvarlega – frá því listgreinin heltók mig – bæði prósa og ljóð. Á tímabili voru þetta mínar aðaltekjur, þótt ekki yrðu þær merkilegar, og á endanum – rétt eftir að Aram fæddist, 2009 – sprakk ég á limminu. Aðallega af því ég fékk engar góðar bækur að þýða, fannst ég allt eins geta farið og unnið á einhverju færibandi, framleitt mat, það er göfugra starf, og þetta var alveg að sjúga úr mér lífsþróttinn. Svo þýddi ég nokkrar ljóðabækur að gamni – Hvítsvítu og Erfðaskrá vélstúlkunnar – nokkur leikrit. Og garfaði í hinu og þessu. Alfabet eftir Inger Christensen hefur verið lengi í bígerð – einsog raunar valin ljóð Gertrude Stein, sem ég hef ekki gert skurk í og er ekki á teikniborðinu sem stendur, þótt slatti sé þegar þýddur – og þýddi fyrir Starafugl og TMM og eitt og annað. Í vor kemur fyrsta skáldsagan sem ég hef þýtt frá því þarna haustið sem Aram fæddist. Og a.m.k. þrjár ljóðabókaþýðingar. Auk þess er ég með tvö hálfgerð leyniverkefni – eina OFSA-klassík sem er pöntuð og unnin í samstarfi við fræðimann og aðra ROSA-klassík sem ég ætla að gera bara sjálfur upp á von og óvon. Og nei, hvorug þeirra er ný Úlysses þýðing, til þess þyrfti maður 5 ára starfslaun.
En sem sagt. September var skáldsögumánuður í vinnunni. Október verður þýðingamánuður (og gerjunar). Og viðeigandi að ljúka þessu á þýðingafögnuði.
ps. Þetta er augljóslega ný bloggsíða. Á endanum bý ég þannig um hnútana að gamla slóðin leiði líka hingað eða þetta verði þar eða hvernig það allt kemur út – þar er enn ekkert nema eitthvað helvítis indónesískt veðmálakjaftæði, en það er verið að vinna í þessu.



