Eitt af því eftirminnilegasta við frönskukennsluna hjá Brynjari Viborg í MÍ á tíunda áratug síðustu aldar var sýning kvikmyndarinnar Germinal. Samt man ég lítið eftir henni, annað en sem sagt að hún gerist á nítjándu öldinni, fjallar um fátækt og kúgun í námubæ og byltingartilraunir/óeirðir, og í henni er sena þar sem skríllinn sker undan kaupmanni nokkrum – og myndin af konunni sem hleypur um með afskorin kynfæri kaupmannsins er sem sagt mjög rækilega vistuð í hausnum á mér, brennd innaná augnlokin, gæti ég sagt, enda sá ég þetta á viðkvæmum aldri. Ég ætla ekki að splæsa á ykkur skjáskoti, þið verðið bara að reyna að sjá þetta fyrir ykkur sjálf.
Déjà, la Mouquette le déculottait, tirait le pantalon, tandis que la Levaque soulevait les jambes. Et la Brûlé, de ses mains sèches de vieille, écarta les cuisses nues, empoigna cette virilité morte. Elle tenait tout, arrachant, dans un effort qui tendait sa maigre échine et faisait craquer ses grands bras. Les peaux molles résistaient, elle dut s’y reprendre, elle finit par emporter le lambeau, un paquet de chair velue et sanglante, qu’elle agita, avec un rire de triomphe :
— Je l’ai ! je l’ai !
Þessi sena einsog hún birtist í skáldsögu Emile Zola.
Í frönsku byltingunni var á sínum tíma búið til nýtt dagatal sem var í gildi í 12 ár frá 1793. Tólf þrjátíu daga mánuðir með sex auka dögum í árslok til þess að jafna út árið. Byrjað var að telja árin upp á nýtt og bæði mánuðir og vikudagar fengu ný nöfn (fyrstidagur, annardagur, þriðjidagur o.s.frv.) og vikan lengd í tíu daga. Nöfn mánaðana vísuðu flest í náttúruna – vetrarsólstöður eða uppskerur – og einn vormánaða fékk þetta nafn, germinal, eftir sögninni germer: að spíra. Þessi mánuður hófst á afmælisdeginum hennar Nödju, sem er líka afmælisdagur Noru Joyce og alþjóðlegur dagur ljóðsins, besti dagur ársins, 21. mars. Og það sem var að spíra var sem sagt byltingarhugurinn. Og hvað sem líður ofbeldinu í myndinni og bókinni – það fer allt úrskeiðis, byltingartilraunin breytist í skrílslæti og er svo barin niður með skefjalausri hörku yfirvalda og auðjöfra (ég er aðeins að að rifja þetta upp) – þá endar hún á þeim nótum að byltingin geti enn átt sér framtíð, annar heimur sé mögulegur.
De toutes parts, des graines se gonflaient, s’allongeaient, gerçaient la plaine, travaillées d’un besoin de chaleur et de lumière. Un débordement de sève coulait avec des voix chuchotantes, le bruit des germes s’épandait en un grand baiser. Encore, encore, de plus en plus distinctement, comme s’ils se fussent rapprochés du sol, les camarades tapaient. Aux rayons enflammés de l’astre, par cette matinée de jeunesse, c’était de cette rumeur que la campagne était grosse. Des hommes poussaient, une armée noire, vengeresse, qui germait lentement dans les sillons, grandissant pour les récoltes du siècle futur, et dont la germination allait faire bientôt éclater la terre.
Lokaorð Germinal
Ekki veit ég hvað ég á að segja um óeirðirnar í Evrópu síðustu vikurnar annað en að auðvitað er ægilegt að horfa upp á skemmdarverk og ofbeldi og kannski er ekkert annað líklegt til þess að gera ráðamönnum ljóst hversu alvarleg staðan er orðin – það þýðir ekkert að réttlæta niðurskurð í menntamálum, heilbrigðismálum, loftslagsmálum og ótal öðrum póstum sem snúa að hagsmunum almennings, þegar misskiptingin er einsog hún er, þegar auðræðið fer sínum eigin hamförum, menn geta ekki bara yppt öxlum og sagt að peningarnir séu búnir, að útlendingarnir hafi étið alla peningana og séu nú að brenna húsin til grunna, það er einfaldlega ekki trúverðugt. En svo er kannski það sorglegasta í þessu öllu að allt bendir til þess að þetta dugi ekki til, að ekkert dugi til, hvorki hófsamur lobbíismi á þjóðþingum eða í evrópuráði, byltingartilraunir á götum úti eða tilraunir til þess að skipuleggja sig í kringum nýja lífssýn, önnur forgangsatriði – það er langlíklegast að þetta fuðri bara allt upp í einhverri djöfuls vitleysu á meðan við stöndum í kringum eldinn og debaterum hvernig hann kviknaði eiginlega og hverjum sé nú mest um að kenna.
Þið fyrirgefið vonandi sínískan vonleysistóninn. Ég er enginn Emile Zola. Ég er sínískur og vonlítill.
Svo er reyndar mikilvægt að halda því til haga að hvað sem líður húsbrunum og öðru slíku þá er það franska lögreglan sem ber ábyrgð á limlestingunum. Það eru fleiri skríll en skríllinn.
Á gleðilegri nótum.
Það eru tónleikar framundan. Næsta föstudag spila ég með Gosa á Húsinu á Ísafirði (tilvalið að fara fyrst á færeysku tónlistarkonuna Guðrið Hansdóttur í Edinborg). 5. nóvember spilum við svo á Airwaves – á nýja Rósenberg – kl. 20 á eftir Marsibil og undan bresku sveitinni Revenge of Calculon. Það verður í fyrsta sinn sem ég spila á tónleikum í Reykjavík frá því ég spilaði með Varða í útgáfuhófi myndarinnar Varði Goes Europe 2002 langar mig að segja. 14. nóvember spila ég svo með Skúla frænda mennska í Edinborgarhúsinu – miðasala hér (ódýrara í forsölu en við hurð).



