Ég verð ánægðari og ánægðari með Anne Carson sem nóbelsverðlaunahafa með hverri mínútunni sem líður. Hún er bæði feykilega snjöll – „alvöru intellektúal“ sem biðst ekki forláts á gáfum sínum, en gerir þær heldur ekki að fjarvistarsönnun fyrir að vera leiðinleg eða þungmelt – og svo eru sum verka hennar einmitt framúrstefnuljóð af því tagi sem helst heilluðu mig á nýhilárunum, vel framkvæmd konseptverk sem eru skemmtileg jafnvel áður en þú lest þau, á meðan maður bara hugsar um þau, sér þau fyrir sér, en auðgast svo við lestur (sem er alls ekki raunin með öll konseptljóð – ég ætlaði að segja „því miður“ en áttaði svo á að mér þykir það stundum alltílagi, ef konseptið er gott er konseptið gott) og svo vill til að mörg þeirra skálda sem sterkast blikkuðu á radarnum hjá mér þá voru einmitt kanadamenn, Christian Bök, Derek Beaulieu, bpNichol og svo auðvitað Angela Rawlings – sem einsog Carson hefur búið á Íslandi um langt skeið og er íslenskur ríkisborgari.
Ég veit ekki hvers smekklegt það er að debatera þjóðerni annars fólks á opinberum vettvangi en fyrst debattinn er hafinn er eiginlega ekki heldur hægt að láta pirraðasta fólkið eitt um að stýra honum. Ég læt mér duga þann fyrirvara við allt sem ég segi hér að þjóðerni er persónulegt mál, hluti af sjálfsmynd manns, og þótt hægt sé að hlæja að einhverjum sem segist vera Japani án þess að hafa komið til Japans eða vita neitt um landið eða tala japönsku, þá er það engu að síður fyrst og fremst sú manneskja sem ákveður og miðlar sínu þjóðerni og við hin höfum lítið um það að segja. Anne Carson er ríkisborgari í tveimur löndum og með ríflega heilan fót á Íslandi. Ég verð reyndar ekki var við að hún tali mikið um þjóðerni sitt eða miðli því – nema kannski hún sé að reyna að segja okkur að hún sé grísk. Eða bara þegn bókmenntanna. En hún hefur tekið virkan sívaxandi þátt í bókmennta- og listalífi Reykjavíkur frá því upp úr hruni. Og ef hún vill vera Íslendingur þá er hún Íslendingur, ef hún vill ekki vera það er hún það ekki.
Hvað um það.
Haukur Már nefndi við mig í gær að eitt af því sem maður gæti verið þakklátur Anne Carson og Nóbelsakademíunni fyrir væri að hafa ruglað í bæði íslenska skilningnum á íslensku nóbelsskáldi með því að gera þau tvö sem eru svona nærtæk (og ólík) – að þar sé ekki lengur bara fjallið eina (sem HKL sagði reyndar að væri Ulysses) – og því hvað það er að vera Íslendingur, að það sé gaman að horfa á hægrimenn væflast í kringum þetta, að þá langi suma greinilega að fagna „sigri Íslands“ en auðvitað sé hún innflytjandi. Utan EES. Og áreiðanlega ekki í þeirra liði. Og þá má halda því til haga að þótt Hannesar Hólmsteinar þessa lands fagni HKL í dag þá höfðu Hannesar Hólmsteinar síns tíma margir á honum ímugust, töldu hann óþjóðrækinn lygahund. Og kommúnista, auðvitað.
En Anne Carson er líka týpískur íslenskur höfundur árið 2026 – eitt af því sem helst hefur einkennt íslenskar ljóðbókmenntir síðasta áratuginn er nefnilega rödd innflytjenda. Þess er skemmst að minnast að Natasha S fékk á dögunum stærstu ljóðaverðlaun landsins fyrir bók sem fjallar meðal annars um þá spennu sem myndast af því að vera með rætur á ólíkum stöðum. Og langfærasta ættjarðarskáldið – náttúruskáldið – sem Íslendingar eiga í dag er Maó Alheimsdóttir. Hands down, einsog maður segir. Og fjöldi þeirra höfunda sem hér starfa og búa og tilheyra samfélaginu og skrifa ýmist á íslensku eða öðrum málum er orðinn feykimikill – ofan í áðurnefnda má t.d. bæta við Joachim B. Schmidt, Elíasi Knörr, Helen Hafgný Cova, Satu Rämö og mörgum, mörgum fleirum.
Þegar þjóðir myndast – þegar þjóðernisprójektið er keyrt í gang, sem í flestum löndum var á 19. öld – þarf að búa til safn af þjóðernistáknum sem nýsköpuð þjóðin notar til þess að útskýra fyrir heiminum og sjálfri sér hver hún er. Stór hluti þessara þjóðernistákna er bókmenntir og ekki bara bækur heldur líka fígúrurnar. Við erum Íslendingar vegna þess að Hallgrímur Pétursson var til, vegna þess að Jónas Hallgrímsson var til, vegna þess að Theódóra Thoroddsen var til, vegna þess að Halldór Laxness var til – og þannig heldur þetta áfram, vegna þess að Jón Páll og Hófi voru/eru til, vegna þess að Björk er til – og myndin af þjóðinni breytist í takti við bæði grjótharðan raunveruleikann og það hvernig sjónarhornin breytast með tíðarandanum.
Einhver spurði í gær hvort það væri hægt að vera Íslendingur ef maður læsi Laxness á ensku – sem aftur kallar þá fram spurninguna hvort það sé hægt að vera Íslendingur og lesa ekki Laxness, einsog stærstur hluti fólks á Íslandi, stór hluti íslenskumælandi Íslendinga sem rekja ættir sínar aftur til Snorra Sturlusonar getur ekki lesið Laxness og gerir það ekki og hefur engan áhuga á því. Hvað þá Hallgrím Pétursson og ég er ekkert viss um að þau hlusti á Björk. Ég er ekki viss um að það breyti heldur neinu um táknin eða mikilvægi þeirra fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar. Ég held að unglingar sem hafa hvorki heyrt Debut né lesið Sjálfstætt fólk grobbi sig alveg af frægustu og bestustu Íslendingunum á sólarlandabörum fyrir það. Og fleygi kannski Damon Albarn með. Og fjöllunum og fiskinum sem hafa heldur ekki lesið Laxness á frummálinu.
Í innflytjendalandi – sem við erum orðin, við erum og verðum lengi héðan af suðupottur, velkomin til nútímans ef þú varst að vakna – er ekkert eðlilegra en að innflytjandi verði hluti af þessari súpu þjóðernistákna. Að á meðan Anne Carson tekur ekki fyrir það sérstaklega þá sláum við okkur á brjóst í útlöndum og fögnum okkar konu með ýkjum – „hún kom til að hlusta á vindinn og hefur ekki farið síðan!“ – og segjum af henni hetjusögur til þess að finna fyrir okkur sjálfum, til þess að skilja okkur (og þetta alveg burtséð frá hennar bókmenntum, vel að merkja, eða hvort maður les þær á íslensku eða ensku).
Hér er annars ágætt að halda því til haga að þótt maður kalli Anne Carson (að henni forspurðri) Íslending þá er maður ekki að segja að hún sé ekki Kanadamaður. Konan mín, sem hefur búið á Íslandi álíka lengi og Anne Carson og haft ríkisborgararétt skemur, þótt hún hafi að vísu lesið Íslandsklukkuna á íslensku, er Íslendingur en það þýðir ekki að hún sé ekki lengur Svíi. Hún á svo finnska foreldra og alla stórfjölskylduna þar og þótt hún sé ekki finnskur ríkisborgari þá lítur hún líka á sig sem finnska. Og þótt Anne Carson sé Íslendingur og Kanadamaður þýðir það ekki að hún geti ekki hafnað hvorutveggja eða bætt á sig fleiri blómum – fleiri köflum í líf sitt.
En ríkisborgararéttur er líka undarlegt fyrirbæri og eiginlega ekki mikið stabílli heldur en þjóðerni. Langafi minn var súdeta-þjóðverji sem fæddist þegar súdetahéruðin voru hluti af Austurríki-Ungverjalandi og var ættaður þaðan. Hann bjó hins vegar alla sína ævi í Þýskalandi en var í raun fæddur austurrískur-ungverskur ríkisborgari og fékk að mig minnir tékkneskan ríkisborgararétt þegar Tékkóslóvakía varð til – en mátti svo af einhverjum orsökum, sem höfðu með þjóðerni og kaþólsku kirkjuna að gera, ekki skilja við langömmu þegar þau vildu gera það (það mátti skilja í Tékklandi en ekki í Austurríki og það mátti skilja í Þýskalandi nema maður væri kaþólikki, sem hann var ekki – með fyrirvara um að ég muni söguna rétt). Börnin hans urðu hins vegar (af einhverjum orsökum) Þjóðverjar, einsog Erich afi sem átti þó íslenska móður – og þegar Erich afi eignaðist börn fylgdi ríkisborgararétturinn föður, þannig að mamma varð þýsk, og þegar Dóra systir fæddist fylgdi ríkisborgararétturinn móður svo hún fæddist líka þýskur ríkisborgari (en þá þurfti að afsala sér ríkisborgararétti til að fá annan, sem gerðist þegar Dóra var fjögur ára og fékk íslenskan ríkisborgararétt – afi fékk það aldrei af því hann var þrjóskur og vildi ekki skipta um nafn). Erich afi var alinn upp bæði í Reykjavík og í Þýskalandi – var sendur í stríðið 16 ára og endaði sem herfangi í Bretlandi og þegar það átti að senda þá heim voru fangarnir sjálfir spurðir hvers lenskir þeir væru, hvert ætti að senda þá, og Erich sagðist vera Íslendingur og var í kjölfarið hent upp í togara á leið til Patreksfjarðar. Af því spurt var um þjóðerni en ekki ríkisborgararétt – á þeim pappírum var hann bara þýskur.
Hvað Carson varðar líkar mér heldur ekki sú skilyrta nálgun sem sumir fara þegar þeir segja „ef þið viljið eigna ykkur AC þá skulið þið líka eigna ykkur alla hina.“ Og eiga við þá sem njóta ekki sömu forréttinda – eru ekki hvítir, ríkir og frægir. Því þótt ég skilji hvaðan sentimentið kemur þá er þetta einmitt skilyrðing á þjóðerni sem auðvelt er að snúa við. Ef að þú vilt X verðurður að samþykkja A felur líka í sér að maður geti hafnað X og verið þar með laus við A – það er samningurinn sem yrðingin felur í sér. Ég held að Snorra Más og kompaní sé líka – excuse my french – drull um Anne Carson og hafi engan áhuga á að eigna sér hana, og ef þeir geti „fórnað henni“ til þess að þurfa ekki að hafa neitt með smælingjana að gera þá velji þeir það á stundinni.
Það er síðan ekki alveg jafn nýtilkomið að þessar línur séu „óhreinar“ einsog Snorrarnir vilja stundum meina. Við höfum áður átt Ashkenazí og Dieter Roth og Bjarna Tryggvason og Ólaf Elíasson og Duranona og Bobby Fischer og Bill Holm og Dorritt og Elizu og Mats Wibe Lund og John Grant og Bogdan og Baltasar Samper og Victor Urbancic og Sverri Guðnason og Brian Pilkington og Roni Horn og Bernd Ogrodnik og alla hina. Engu að síður er augljóslega meiri fart á fólki um heiminn í dag en áður og ef við ætlum að eiga eitthvað í framtíðinni sem heitir Ísland, einhverja sjálfsmynd umfram sjálfa landafræðina, þá verður sú sjálfsmynd að taka mið af því hver við erum á hverri gefinni stundu – hún verður að breytast með okkur því annars breytist hún í hálfgert grafhýsi.



