Meira kaffi. Ég er farinn að halda að það sé ekki nema 1/5 kaffibolli í þessu nespressokjaftæði sem ég er með á skrifstofunni.
Strembin en gjöful helgi að baki. Á laugardagskvöld var blúsgigg með Skúla mennska og á sunnudag brenndi ég til Reykjavíkur til þess að lesa upp með lúðrakvartettinum Tu Ha? Tu Bjö! en fjórmenningarnir voru að fagna útgáfu nýrrar plötu á Fantasíu. Sem er hvað – ekki knæpa allavega. Varla krá. Klúbbur? Þetta hangir saman við þarna Kjarvals-vinnustofudæmið sem er klúbbur – members only – en Fantasía er opið öllum sem rata á innganginn. Það er svo mikið af Þrándi á veggjunum að mann svimar. Búsáhaldabyltingin og Kristrún Frostadóttir í Amerísku fánalitunum. Pólitískur ofsi og ofsalega dýrir sófar. Tilfinningin er einhvern veginn einsog að vera samtímis staddur á fundi hjá Frímúrunum og Kommúnistaflokknum. Fór alveg með kognitífa dissonansinn minn.
En staðurinn var næs og starfsfólkið og gestirnir og næsastir allra voru Tumarnir tveir, Hannes og Björgvin, sem mynda kvartettinn – ég las annars vegar prósann sem fylgir plötunni (Um ferðalag andans og áfangastaði I og II) og hins vegar Úr órum Tobba. Það er gamalt hljóðaljóð unnið upp úr heildarverkum Æra-Tobba og það hef ég lesið mjög oft í gegnum tíðina – á annarri hverri ljóðahátíð í Evrópu, grunar mig – en bara einu sinni áður í Reykjavík, þetta eina skipti sem mér hefur verið boðið á Bókmenntahátíð Reykjavíkur, árið 2011.
Nei, það er lygi, ég las það líka einu sinni með Reykjavík! á einhverjum menningarnæturtónleikum í æfingarhúsnæðinu þeirra við hliðina á Grand Rokk – þá var hópur af finnskum unglingsstúlkum meðal áhorfenda og þær tóku upp á því að syngja alltaf með í viðlaginu! Sem var mjög gaman! En allavega – ekki í fimmtán ár a.m.k. og það var áreiðanlega kominn tími til. Auk þess les ég afar sjaldan hljóðaljóð síðustu árin og hef engin ný samið lengi og geri kannski aldrei aftur.
En það var sem sagt rosalegt að gera þetta með Tu Ha? Tu Bjö! – einsog að sitja klofvega á eimreið. Og tónleikarnir voru æði og platan þeirra er líka æði. Hana er hægt að kaupa hér.
Það er komið heilmikið greinasafn inn á síðuna mína. Þar má finna ritdóma, viðtöl, skáldskaparfræði og ýmislegt fleira og ég reyndi að ganga frá þessu þannig að það væri þægilegt að grúska í safninu. Ég er síðan eitthvað að vinna í að ganga frá ljóðaúrvali þarna líka. Mig langar enn að prenta líka ljóðaúrval og kannski verður þetta skref í þá átt – en þarna verður kannski meiri áhersla á upptökur.



