
Það er mánuður í þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandsumsókn – ég ætlaði að segja að umræðan sé gersamlega farin af hjörunum en í raun var hún af hjörunum alveg frá fyrsta orði. Ég hef það ekki á tilfinningunni að einn einasti málsmetandi maður á þessu landi hafi íhugað afstöðu sína í svo mikið sem sekúndubrot – þess sér a.m.k. ekki stað í langlokunum sem skrifaðar eru á fb að því er virðist í því eina augnamiði að grafa sína eigin hæla lengra niður í jarðveginn, einsog þetta sé reipitog, og kannski líka sannfæra sjálfan sig enn frekar um að sú afstaða sem maður hefur haft frá fyrstu stundu sé sú eina rétta og allir aðrir séu þjóðníðingar og aumingjar sem „sagan muni muna“. Sumir orða það pent – aðrir ekki – en í grunninn er þetta hreyfingin. Tvær skotgrafir og barátta við hreina illsku á báða bóga. Það er eitthvað mikið að okkur (og ekki bara á Íslandi – þetta er svona alls staðar).
Smá próf: Ef maður getur ekki einu sinni velt fyrir sér afstöðu þeirra sem maður er ósammála án þess að hrista hausinn og finna hvernig fingurna fer að klæja að skrifa eina langloku til viðbótar, þá er maður kannski ekki með afstöðu heldur bara árátturöskun.
Sjálfum finnst mér liggja beint við að aðild – og þetta er ekki atkvæðagreiðsla um aðild, hvað sem óheiðarlegir um það gelta – hafi í för með sér ýmislegt jákvætt og annað neikvætt. Það myndi sléttast úr ýmsum agnúum „íslenska kerfisins“ – t.d. er líklegt að fiskverðssirkusinn myndi líða undir lok – og við fengjum einhverja nýja frá „evrópska kerfinu“.
Ég held mér þyki annars skrítnust sú afstaða að gera Evrópusambandið að samheiti fyrir kapítalismann – ekki vegna þess að þar ríki ekki kapitalísk lögmál heldur vegna þess að það stillir valkostunum upp einsog það ríki ekki kapitalísk lögmál á Íslandi. Það er eitthvað trúarlegt við það – einsog að benda á syndina í næstu sveit til marks um að ekkert sé syndgað í þessari. Sama gildir um áhersluna á hörð landamæri sambandsins – þau eru vissulega ekki fagnaðarefni, en það er ekki einsog við séum eitthvað skárri.
***
Annars gengur lífið sinn vanagang á Ísafirði. Ég er að nálgast endann á Liken vi begravde þýðingunni. Á morgun kemur Per vinur minn í heimsókn með fjölskyldunni sinni. Við ætlum að renna saman út að Látrabjargi á fimmtudag. Í gær lék Öddi (og Rúna) í Blómagarðinum – sem heitir Austurvöllur, sennilega er þetta Blómagarðsnafn bara eitthvað sem ég tók upp á barnsaldri, veit alls ekki hvort aðrir kalli hann Blómagarðinn, kannski, kannski ekki – og í kvöld ætla ég að fá mér bjór með gömlum vini, Grími Hákonarsyni (það vita það ekki margir en Grímur er stofnmeðlimur í Nýhil).
Aram ákvað svo að henda í impromptu djasskvartett til þess að spila á Tjöruhúsinu milli hádegis- og kvöldverðar næsta sunnudag. Hann trommar sjálfur og Guðrún vinkona hans leikur á píanó, sjálfur Tumi Torfason („tengdasonur tjöruhússins“) ætlar að leika á trompet og ég verð á kontrabassa. Það verður alveg að viðurkennast að þetta er mjög bratt fyrir mig – sjö lög og miserfið en það erfiðasta (Four, Miles Davis) er gersamlega að gera út af við mig. Það er of flókið og ringlandi í byggingu til þess að ég treysti mér til að spinna göngubassann svo ég lærði bara línurnar – en gangurinn er líka helvíti langur og ef ég fer af sporinu er alls ekkert víst að ég finni það aftur.

