Ég hef yfirleitt verið á því að miðvikudagar séu verstu dagar vikunnar og hlegið að andúð fólks á mánudögum. Á mánudögum mætir maður úthvíldur og nærður, fullur ástríðu og andagiftar. Klárar sig á tveimur dögum. Mætir bugaður á miðvikudegi búinn að drekka alla andagiftina, veit ekki lengur hvað snýr upp og niður í hinum ýmsu verkefnum. Á fimmtudegi byrjar svo þurrafylleríið – kæruleysið veitir manni gleði og á föstudegi er svo gott sem komin helgi. Þá getur maður farið að flippa.
Ég hef ekki tekið mér mikið helgarfrí í ár, beinlínis, ekki til hvíldar, og því hefur þessi rytmi dottið úr synki. Ég segi ekki að ég hati alla mánudaga, til þess er þessi rytmi of óreglulegur, en ég ber kennsl á daginn í dag sem svona mánudag sem annað fólk hatar. Ég er úrvinda og að drukkna í verkefnum. Skáldskapurinn, sem ég fagna yfirleitt á mánudögum, er ekki eitt þessara verkefna – ekki minn skáldskapur a.m.k. – heldur alls konar annað ves. Yfirlestur. Bókhald. Tölvupóstar. Skipulag. Og þá er auðvitað best að flýja það allt með því að blogga.
Aldrei þessu vant var ég samt í eins konar fríi á helginni. Og þetta var meira að segja löng helgi. Ég keyrði suður síðasta miðvikudag til þess að spila með Gosa á Iceland Airwaves á fimmtudagskvöldið og notaði hina dagana til þess að kúltúrmaxxa. Fór á fullt af tónleikum, tvisvar í bíó, á einn fyrirlestur í HÍ og meira að segja á leikrit. Og auk þess tók ég þrjú drop-in í líkamsrækt og fór tvisvar út að hlaupa, hitti fólk í hádegismat og kaffi, og keypti bæði bækur og hljómplötur. Byrjaði á fjórum (4!) hljóðbókum en hætti við þær allar. Las fremur lítið en þó eitthvað aðeins – í Gliff eftir Ali Smith.
Skýrslan. Ég byrjaði ferðina í Kötlu Fitness í Lambhaga. Það er í sjálfu sér eitt hvað svona drop-in þarf alltaf að kosta formúgu – og tíu miða kort alltaf einhvern veginn þannig að þau renna út á þremur mánuðum. Það vantar lausn fyrir landsbyggðafólk. Eða samstarf. Í Svíþjóð, þar sem allt er hræðilegt að mati nýjasta viðmælanda Frosta Logasonar, eru keðjur með starfsemi jafnvel í minnstu krummaskuðum. Svo maður getur verið með kort og líka litið við í Stokkhólmi þegar maður er á ferð. Ég reikna ekki með því að keðjurnar í RVK treysti sér til þess að halda úti starfsemi í öllum fjórðungum en þær mættu bjóða upp á þó ekki væri nema 10 miða kort með lengri gildistíma – eða einhverjar aðrar lausnir (fólk með áskrift í Stöðinni á Ísafirði gæti kannski fengið að fara í World Class í RVK í skiptum fyrir að World Class fólk í RVK gæti fengið að fara í Stöðina þegar það er fyrir vestan?). Allavega. Fín rækt. En það var meiri traffík en ég átti von á (stöðin er úti í rassgati) og tækin öll einhvern veginn svört sem gerði mig sérstaklega ringlaðan – ég þurfti að stara á þau lengi áður en ég áttaði mig á því til hvers þau væru.
Kvöldmatur á Mandí. Þetta var áður en Stefán Einar fór að tala um kebabelskandi góða fólkið, ég var kebabelskandi áður en það var töff – átti meira að segja einu sinni heima í Berlín, þar sem er allt krökkt í bæði múslimum og kebabelskendum, og skrifaði líka ljóð fyrir Grapevine um flóttamenn og kebab. Fínt kebab. En í miðri máltíð fór mig samt að ráma að eigandinn væri cancelled fyrir eitthvað. Man ekki hvað, kannski er það misminni – kanslbókhaldinu mínu er alls ekki sérlega vel við haldið og ég bara nenni ekki að gúgla öllu.
Um kvöldið fór ég á djassklúbbinn Múlann á Björtuloftum í Hörpu. Andrés Þór var þar í forsvari fyrir tríó með Nico Moreaux á bassa og Magnúsi Trygvasyni Eliassen á trommum (eitt g í Trygvason og tvö ss í Eliassen – ekkert í – það er best að rifja þetta upp í hvert sinn sem maður skrifar nafnið og á endanum festist þetta í fingrunum). Þar var leikið efni af nýrri plötu Andrésar, Relocate, sem er framúrskarandi – ég keypti mér eintak. Ég kann ekki að lýsa góðri djasstónlist – þetta eru alls konar stef og flæði, tryllt bít og þrír algerlega einstakir hljóðfæraleikarar að gera það sem bara algerlega einstakir hljóðfæraleikarar geta, að búa til stöðugan galdur. Ég var uppnuminn. Og gaman að geta bæði fylgst með togurum koma í land og flugvélum að lenda út um gluggann.
Eftir morgunverð á fimmtudag fór ég út að hlaupa. Ég gisti við hliðina á RÚV, í Vörðuleitinu, og hljóp einhvern svona Öskjuhlíðarhring. Beygði upp í skóginn og lenti í dálitlum ógöngum, beygjandi mig undir trjágreinar og hoppandi yfir rætur, í landslagi sem var alltof bratt fyrir mig og svo var ég farinn að hugsa hvort þarna djúpt í skógarþykkninu væri ekki allt krökkt af fíklum sem myndu stinga mig fyrir hlaupaskóna. Mér var sagt síðar að það stæði til að malbika þetta allt í nafni aðgengis og ég veit ekki með það. „Remoteness“ er líka eiginleiki sem vert er að standa vörð um – stígur sem er ekkert nema rætur og ves hefur aðra eiginleika en malbikaður beinn stígur.
Hitti Lomma og Braga Pál á Stjörnutorgi sem ég var búinn að gleyma að héti Kúmen. Og er líka miklu fínna en Stjörnutorg var en það er þá aftur eiginleiki sem hefur glatast – ófínleiki, má standa með honum? Ég átti einu sinni heima í Stigahlíð og þá var þetta hverfissjoppan mín. Nema hvað. Við fórum á Yuzu og keyptum okkur borgara. Þegar Bragi ætlaði að sækja sinn, sem var grænmetisborgari, kom í ljós að einhver annar hafði tekið borgarann hans í misgripum og því þurfti að gera nýjan. Einhvers staðar á Yuzuborgurum var sem sagt maður að borða grænmetisborgara sem hann hélt að væri kjötborgari. Keypti Íslenska óhamingju af Braga.
Sándtékk á Rosenberg. Ég hef aldrei farið í sándtékk og fundist sándið um kvöldið hljóma neitt líkt því sem það hljómaði í sándtékkinu. Samt er aldrei neinu breytt. Ég held þetta sé mest fyrir hljóðmennina. Ég stilli magnarann alltaf flatan og er svo með allt eq í einhverjum pedölum eða í bassanum sjálfum – spila stundum með dempara, stundum með nögl, stundum framarlega eða aftarlega á hálsinum og það breytir allt miklu. Ég hef reyndar hljóðmenn stundum grunaða um að „leiðrétta“ allt bassasánd – að leita leiða til þess að láta það hljóma normalíserað, vinna gegn stillingunum mínum. Ekkert sérstaklega á Rosenberg, vel að merkja, þetta voru mjög fínir hljóðmenn.
Kvöldmatur með hljómsveitinni á Momo Ramen. Við fengum 10% afslátt út á armböndin okkar. Sem var minna en við héldum. Mig hefur lengi langað að borða þarna og er mikill ramenkall. En þetta voru eiginlega bara núðlur í la-la soði. Smá svínakjöt. Kannski var eitthvað grænmeti í þessu. Ég keypti „auka egg“ en af því venjulegt „egg“ var bara hálft egg fékk ég bara tvo helminga, sem sagt eitt egg. Og það var rukkað sérstaklega fyrir allt. Það kostaði meira að segja að fá auka chili – sem maður ætti bara að fá á borðið og fær víðast hvar.
Ég ætlaði í útgáfuhóf Braga Ólafssonar en af því að sándtékkið tafðist sleppti ég því og fór aftur niður á Rosenberg til að sjá Marsibil. Þau voru mjög skemmtileg. Svo vorum við og við vorum líka mjög skemmtileg og á eftir okkur kom Brynja með stóru bandi (m.a. með hörpu!) og hún var líka mjög skemmtileg.
Japanska pönkbandið bed var að spila á Lemmy’s. Brjálæðislega intens dæmi og skemmtileg músík. Næstum jafn japanskir og kanadíska bandið á eftir þeim var kanadískt. Það hét Piss (gott nafn) og söngkonan byrjaði á langri trigger warning ræðu sem var áreiðanlega þörf á af því öll lögin fjölluðu um nauðgun. Og voru vægast sagt keimlík. Hún byrjaði á því að setjast (eða liggjast, ég sá ekki) á gólfið og þá kom eitthvað textasampl í hátalarana – frétt um nauðgun eða róttækur femínískur fræðimaður að tala um nauðgun eða eitthvað álíka. Svo byrjaði lagið aðeins rólega og hún lýsti einhverju á borð við brotna æsku og grooming áður en hún fór að öskra af lífs og sálarkröftum og tónlistin varð harðari. Svo lagðist hún aftur í gólfið og tók annan hring, nýtt lag. Textinn var allur meira og minna eitthvað svona 70’s tráma-slamljóðlistardæmi („I keep trying make this pain mean something / I keep trying to make this pain mean something / I keep trying make this pain mean something“) og mér fannst þetta ekki gott. Mér skildist að sumum hefði þótt það og einhverjir hefðu jafnvel þurft að fara heim til sín að prósessa.
Revenge of Calculon kláruðu Rosenberg. Ég veit ekki alveg með það heldur. Mjög vinalegar týpur. Bretar með glímugrímur að spila einhvers konar syntha-fönk – nema sloppí. Mest lagt í að reyna að ná upp stuðinu sem gekk svona la-la. Bassaleikarinn var mikið að nota einhvers konar envelope filter sem rændi bandið botninum í mörgum lögum. Ég hugsa að ef ég hefði gengið inn á þetta fyrir tilviljun á einhverjum pöbb í Bretlandi hefði mér þótt þetta geggjað. En mér fannst skrítið að svona band væri komið alla leiðina til Íslands til þess að spila. Í restina var með þeim rappari sem hét Mouth to Mouth sem er hræðilegt rapparanafn.
Róta og sofa.
Föstudagsmorgun fór ég í ræktina í Vatnsmýri. World Class. Þar voru tækin rauð og svört og einhvern veginn þannig hönnuð að ég sá strax hvað þau gerðu. Rándýrt drop-in. Flestir gestir virkuðu á mig einsog þeir væru annað hvort aldraðir prófessorar eða háskólastúdentar og áreiðanlega hvorki í hugvísindum eða félagsvísindum og alls ekki ritlist. Rækt full af líkömum sem allir voru sitt eigið musteri. En þar sem goðin flexa verða menn bara dálítið utanveltu.
Þýðendaþing – hét það ekki það? Móheiður Hlíf var með fyrirlestur um starf sitt við að þýða Vónbjörtu Váng í stofu 220 í aðalbyggingu háskólans. Ég hafði fyrst lesið „aðalsal“ háskólans og var næstum genginn inn á einhvern læknisfræðifyrirlestur. En stofa 220 er gömul og friðuð – sætin einsog í hringleikahúsi – mjög sérstakt og fínt (en ekki gott aðgengi! of mikið remoteness!) Ég er áhugamaður um bæði Færeyjar og ljóðlist og þýðingar og Skriðu (sem gaf út bókina) og Móheiði og Vónbjörtu og þetta var því að vonum bæði fróðlegt og skemmtilegt og ekki síður umræðurnar á eftir.
Hádegismatur með Hauki Ingvars á Stúdentakjallaranum. Þangað hafði ég ekki komið í áreiðanlega áratug. Borgarinn hefur ekkert breyst.
Formal Sppeedwear [sic] á Gauknum var svolítið einsog ef Rush tækju upp á því að spila bara Talking Heads lög. Sem er betra konsept en maður gæti kannski ætlað. Flott músík. Them Flying Monkeys komu næstir og voru eilífð í gang út af einhverjum hljóðmálum. Og ávörpuðu aldrei áhorfendur allan tímann. Ekki fyrren það var loksins búið að finna út úr þessu, eftir sirka hálftíma bið, að þeir þökkuðu okkur fyrir að bíða. Gott rokk. Portúgalskt. Þétt og vel æft en þeir hafa ábyggilega átt betri gigg. Svo er eitthvað desperat við þessi bönd sem eru alltaf að biðja mann að koma líka á næsta gigg á gigginu sem þeir eru að spila.
Vaterland í Bíó Paradís. Ég heyrði í fólki tala um hana í útvarpinu um kvöldið – meðal annars Sigþrúði hjá Forlaginu og Grími Hákonar, en þar var líka þýskættuð kona sem ég náði ekki hvað hét – og Grímur (sem ég hafði reyndar rekist á í Eymundsson daginn áður þar sem ég var staddur til að kaupa Lynn Painter bækur fyrir dóttur mína) sagði að myndin væri svo falleg að það væri hægt að horfa á hana með hljóðið slökkt. Sem er alveg satt. Ég held ég hafi skynjað hana minna sem eitthvað drama milli þeirra feðgina, Eriku og Thomasar, og alls ekki þannig að hann væri einn um að vera bældur og því væri líf hennar erfitt – einsog mér hefur sýnst fólk gera – og meira bara að þetta væri fólk sem hefði lifað mjög þungbæru lífi og fólk sem vildi axla hluti sem það hafði ekki endilega kraft til að axla, það biti á jaxlinn ekki í tilgangsleysi heldur einmitt vegna þess að það sæi tilgang með lífi sínu, en borgaði svo fyrir þessar jaxlbítingar með því að vera tætt. Lífið tætir og það eru engar réttar og rangar ákvarðanir, bara tætingur og allir að reyna sitt besta. Senan þar sem þau ganga bæði inn í sprengda kirkju og hlusta á orgelviðgerðarmenn leika á orgel í viðgerðarskyni – og fara svo að gráta, sitjandi þarna hönd í hönd – var algerlega dásamleg. Og lýsandi ekki bara fyrir þau (sem eru nýbúin að missa bróður/son – og eru í sinni fyrstu heimsókn í nýklofnu Þýskalandi frá því fyrir stríð – en halda áfram planinu, skref fyrir skref, þótt það virki von- og þar með tilgangslaust) heldur líka fyrir bæði Þýskaland sem slíkt, afdrif Weimarlýðveldisins, afdrif Þriðja ríkisins og nú Austur- og Vestur-Þýskalands. Það er allt hrunið. Allt í endurbyggingu. Of mikill sársauki í baksýnisspeglinum. Of margt að gera til þess að hægt sé að sinna í því öllu í einu eða sjá fyrir endann á neinu. Ekkert nema harmur. Og svo þessir menn þarna að gera við orgelið, verndarenglar fegurðarinnar, og augnabliks afdrep til að gráta.
Kvöldmatur var dýr pizza einhvers staðar á Laugaveginum. Alltof dýr og ekkert sérstök. Föstudagurinn var ekki sterkasti matardagurinn. Endaði kvöldið á Dillon að hlusta á hljómsveitirnar Tófu og Nei – en þær eru með sitthvorn bókmenntapáfann á áhafnarlistanum. Í Tófu leikur Jói í Bara bókum á trommur og í Nei spilar Tómas Ævar úr Víðsjá, höfundur Breiðþotna, á bassa (svo var reyndar gítarleikarinn í Tófu, Árni, einu sinni plöggari Forlagsins). Tófa leikur gríðarfínt keyrslupönk og Nei er tríó með trommum, bassa og syntha sem er sennilega einhvers staðar á Joy Division / New Order rófinu og gerir það vel. Algerlega solid dæmi. Það ættu allar hljómsveitir að vera með skáld eða bókmenntafræðing á eitthvert hljóðfæri. Þetta vissu t.d. Sykurmolarnir og uppskáru heimsfrægð fyrir.
Heim að sofa.
Tíu kílómetra flugvallarhringur með Sigga „Hoxha“ Gunnarssyni um morguninn. Siggi hleypur venjulega miklu hraðar en ég en við mættumst einhvers staðar á miðri leið sem þýddi að ég hljóp mína hröðustu tíu km í ár. Próteinstopp á Skólavörðustígnum. Sund í Sundhöll Reykjavíkur, þar sem ég hef sennilega aldrei komið – og varð mjög ringlaður, sérstaklega í skiptiklefanum. Æðisleg sundhöll. Banh mí á Hlemmi sem var líka æði. Ég lagði bílnum í rafbílastæði – hélt ég væri á rafbíl (PHEV) og bíllinn í stæðinu við hliðina var ekki í sambandi svo ég hélt að það kæmi ekki að sök þótt ég væri í raun ekki með kapal til að stinga í samband. En fékk sekt. Hildur Björnsdóttir bregður fæti fyrir listamenn hvar sem hún getur greinilega.
Kaffi með Tuma og Brynju. Keypti Undir fögru skinni og fékk Max Porter bókina að gjöf. Og fór svo á nýju Almodóvar myndina, Amarga navidad. Hún fjallar um kvikmyndaskáld sem minnir á Pedro Almodóvar sem er að skrifa handrit um kvikmyndaskáld sem minnir á Pedro Almodóvar en er kona sem er að skrifa handrit um kvikmyndaskáld sem minnir á konuna sem minnir á kvikmyndaleikskáldið sem minnir á Pedro Almodóvar. Öll þessi skáld eru innblásin af því sem gerist í kringum þau, vinum sínum og elskhugum, og það endurspeglast í því sem þau skrifa og kemur þeim í vandræði. Grunnþemað í myndinni er meðal annars ábyrgð höfundarins gagnvart fólkinu sem veitir honum innblástur – og mætti halda því fram að skáldin séu öll dálítið hrokafull, taki sér réttinn til að skrifa frjáls, en ég held það sé misráðið að stoppa þar og segja að myndin sé um þennan hroka, ég held hún sé miklu frekar um ómöguleika þess að skapa nokkuð í heimi sem annars vegar krefst fullkominnar einlægni og hins vegar fullkominnar tillitssemi, þar sem allt á að hreyfa við manni en ekkert má særa mann (eða særa neinn). A.m.k. ef maður vill að það orð fari af manni að maður sé almennileg mannvera ofan í allt annað. Enda má túlka niðurstöðu Almodóvars þannig – að eina lausnin sé að gefa í.
Meiri pizza í kvöldmat. Aftur á Stjörnutorgi. Ég gekk í hringi og ætlaði í alvöru að fá mér eitthvað annað. Þetta var betri pizza en á Laugavegi og ekki jafn dýr en hún var eiginlega of mikill matur og ég get ekkert hætt að borða pizzu í miðju kafi svo ég át mér til óbóta. Rakst á dóttur mína, sem var að hanga í Kringlunni með vinkonu sinni – hún hafði flogið suður á föstudeginum í þessum tilgangi og af því það var hægt að fá frítt far með mér heim á sunnudeginum – og svo fór ég á Djöflana í Borgarleikhúsinu.
Djöflarnir eru eftir Lars Norén og þótt ég sé ágætlega verseraður í sænskum bókmenntum hef ég litla beina reynslu af Norén sem nýtur gríðarlegrar virðingar og margir myndu vilja sjá að fengi nóbelinn áður en yfir lýkur. Verkið fjallar um hjón sem hata hvert annað innilega og virðast föst í því hatri frekar en að finna sér útleið. Mamma mannsins er nýdáin og hann kemur heim með öskuna af henni í keri. Bróðir hans er á leiðinni, það á að grafa öskuna daginn eftir, en svo ákveður hann að stoppa á hóteli „til að horfa á leikinn“ og koma bara beint í greftrunina. Hjónin höfðu verið á leiðinni út á lífið og geta ekki verið ein svo þau bjóða nágrönnunum upp í staðinn – það er talsvert efnaminna fólk sem á tvö lítil börn og virðast lítið hafa sofið eða farið út síðustu árin. Þeirri spurningu er ósvarað hvers vegna þetta fólk á heima í sömu byggingunni – Svíþjóð er ekkert minna stéttskipt samfélag en Ísland og ég fæ þetta ekki alveg til að koma heim og saman. Og leikmyndin, eins fín og hún var, var ekkert að hjálpa – íbúðirnar áttu að vera „eins“ en ólíkt innréttaðar en leikmyndin var einsog í mjög dýru húsi.
Textinn er ágætur. Kannski ekkert mikið meira en það. En verkið hefði alveg þolað að honum væri betur treyst. Það er alveg ægilega mikið gargað, einsog það sé eina leiðin til þess að tjá fyrirlitningu eða kalla fram tilfinningar hjá áhorfendum – og myndi satt best að segja stundum á kanadísku pönksveitina Piss, sem ég nefndi hér að ofan og átti við svipaðan dramatúrgískan vanda að stríða – og þegar það var ekki verið að garga var treyst á að hálfgert slappstikk og spaugstofuhúmor myndi halda uppi fjörinu. Móðirin af neðri hæðinni fékk einhvern veginn aldrei að verða raunsæisleg persóna – og allar persónurnar voru eintóna. Það var helst að mér þætti Vala Kristín, sem leikur frúnna á efri hæðinni, vera í réttri tóntegund af og til – bítandi nastí og þjáð og bæld án þess að vera hysterísk. Og svo var eitt og annað vísual element sem var geggjað – til dæmis dansinn með yngingargrímuna þegar Vala Kristín breytist í hjarta og endirinn þegar Hilmi Snær, nýmóðurlaus, verður að fóstri.
En það er samt aldrei leiðinlegt í leikhúsi. Ekki einu sinni þegar það er leiðinlegt. En sætin í Borgarleikhúsinu eru vel að merkja fáránleg, ef ég má leyfa mér hérna smá neytendahornsnöldur. Að maður borgi á níunda þúsund fyrir að sitja einsog síld í tunnu er ekki til þess að ýta undir leikhúsnautnina – ekki fyrir mann með langar lappir. Samt sat ég úti í enda – ég hugsa að ég hefði farið í hléi ef sætið mitt hefði verið inni í röð.
Sofa.
Fyrir heimferð skaust ég í Hreyfingu í Glæsibæ. Rándýrasta drop-in ferðarinnar, einsog vel ríflega hálf leikhúsferð. En mikill lúxus, mikið pláss, sánur og pottar og alls konar næs. Þegar ég hafði lokið mér af kannaði ég hvort að Aino væri búin að borða og þegar svo reyndist keypti ég mér „eðalskál“ á kaffihúsinu þarna – sem var einhvers konar avókadójógúrtbræðingur með bönunum og kókos og alls konar gúmmelaði og það var fáránlega gott. Svo keyrðum við vestur. Stoppuðum í Hyrnunni og keyptum Subway til að éta í bílnum. Það er óhuggulega dimmt að keyra svona í snjóleysinu. Og alls ekki nógu margir opnir staðir á leiðinni til að kaupa sér kaffi. Á móti kemur að norðurljósin uppi á Dynjandisheiðinni voru óborganleg.



