Þemað í Uppástandi á Rás 1 þessa dagana er „menning“. Ég hef einu sinni áður verið beðinn um að taka þátt í þessu en hafnaði því vegna þess að greiðslan er 10 þúsund krónur í verktakalaun og svona nokkuð tekur alltaf um einn og hálfan vinnudag, ef vel á að vera, hugsað, skrifað, editerað, endurskrifað, æft og upptekið (sem ég gerði sjálfur) og 10 þúsund er ekki einsoghálfs dags laun (ég spurði ofurtölvuna hans Sams Altman hvað væri eðlilegt að „margverðlaunaður sérfræðingur í sínu fagi“ þ.e.a.s. ég tæki fyrir verk af þessu tagi og tölvan miðaði við taxta Byggðastofnunar og Náttúrufræðistofnuna bætti við VSK og sagði 240- 300 þúsund en tölvan hans Sams er reyndar alræmdur smjaðrari).
Ég hef líka gert svona pistil fyrir sænska ríkisútvarpið – þar heita pistlaþættirnir Obs og þá var þemað Evrópa og þjóðerni (og pistillinn sem ég flutti varð Ljóð um matarvenjur, sem kom í Óratorrek). Greiðslan fyrir það var eiginlega sú sama og fyrir Uppástand, nema bara í sænskum krónum (gengið er x12) og henni fylgdi afsökunarbeiðni – við vitum að þetta er lítið – og 30% aukagreiðsla þegar pistillinn var endurspilaður síðar. Og að vísu var hann líka lengri, en það tekur ekki endilega styttri tíma að skrifa og taka upp styttri pistil.
En þetta er auðvitað ekki eitt heldur allt. Mér hefur verið boðið að keyra til Akureyrar til þess að lesa upp fyrir ókeypis súpu, verið látinn standa straum af öllum ferðakostnaði innanlands vegna kynningar á verkum sem ég hvorki gef út einn né græði á einn (og enn hefur mér ekki tekist að fá styrk fyrir ferð nema hún sé úr landi), fyrirframgreiðslan sem ég fæ fyrir skáldsögu er sama krónutala nú og 2004, heildargreiðslan fyrir að gefa út ljóðabók er sirka tveggja daga lágmarkslaun, þeir sem borga taxta fyrir þýðingar eða pistla borga að jafnaði ekki réttan taxta (og mjög margir, einsog bara t.d. RÚV, búa bara til einhverja krónutölu, fáránlega tölu, 10 þúsund kall, take it or leave it), fyrir utan þá sem verða bara mjög hissa þegar maður segist hafa reiknað með því að fá eitthvað greitt (og öll skiptin sem maður sagði ekki neitt því það var augljóst að maður átti að vera þarna fyrir ánægjuna) og svo sækir maður um ölmusulaunin sín árlega til listamannalaunasjóðs til þess að ná endum saman upp á von og óvon og mér er hreinlega farið að finnast einsog ég sé að niðurlægja sjálfan mig með þessu. En kannski eru það stofnanirnar og fyrirtækin sem eru að niðurlægja sig með þessu – kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni með því að verðleggja allt sem listamenn gera í ruslflokki, með því að láta einsog það sé eiginlega einskis virði.
Og sem sagt, 10 þúsund kallinn sem mér var boðinn 2022 er enn 10 þúsund kall, nema á þávirði er hann 8 þúsund kall, ég hefði grætt meira á að gera þetta þá en nú, og ef maður er í neðsta skattþrepi standa um 5.500 krónur eftir þegar búið er að greiða skatt, tryggingagjald og lífeyri – einsog meira og minna öll laun í menningarbransanum er þetta sem sagt upphæð sem stendur í stað (bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar fær t.d. 200 þúsund krónur og fékk líka 200 þúsund árið 2013, sem ætti að vera 350 þúsund) – ég gæti haldið áfram að þylja upp svona dæmi í allan dag, nær allar svona upphefðir listamanna og laun og sporslur og hvað maður kallar þetta eru óuppfærðar krónutölur og þetta hefur heilt yfir mjög mikil konkret áhrif á pyngjur þeirra, sic transit gloria mundi, jafnvel þeirra sem eru að „gera það gott“).
Og það er sem sagt þetta sem pistillinn minn „er um“ ef einhver skyldi eiga erfitt með að ráða í hann. Ég íhugaði alveg að senda bara reikning fyrir þessu einsog pípari – hér eru 12 vinnustundir, þær kosta það sem ég segi að þær kosti. En ég gerði það ekki.
ps. Ég fékk betur borgað fyrir pistlana sem ég var með í Lestinni síðasta vor – ekki SR verðið og ekki Sam Altman verð eða píparaverð – en margfalt betur en þetta og ég fékk líka skilaboð þar sem fram kom að Lestarstjórar gerðu sér grein fyrir því að þetta væri ekki pípara sæmandi. Það er eiginlega lágmark að það sé bekennt.
MENNING
Þegar ég heyri orðið menning teygi ég mig í skammbyssuna, þegar ég heyri orðið menning tek ég öryggið af, fletti af mér blautri verjunni, ríf af mér björgunarhringinn og hrópa á hjálp. Þegar ég heyri orðið menning tek ég fyrir eyrun, tek fyrir augun, dreg fyrir gluggatjöldin, reyni að vakna, reyni að sofna, reyni að troða marvaða, draga ýsur einsog heimspekingar sjóða ýsur, það er menning, sögðu heimspekingar, að sjóða ýsur, að draga ýsur, skera hrúta, að gera það vel, þetta er menning, sögðu heimspekingar. Þegar ég heyri orðið menning teygi ég mig í veskið, teygi mig í bankaappið, teygi mig í heimilisbókahaldið og sannreyni það sem ég veit, sem ég hef vitað í aldarfjórðung, frá því ég lét þetta orð af vörum mér falla í fyrsta sinn, „menning“, að þegar fólk heyrir orðið rekur það upp skaðræðisvein, sker hryglur einsog hrúta og fé við nögl, greiðir tveggja daga viðvik með klukkustundarlaunum, ársverk með tveggja vikna bitlingi, ævistarf með hungurlús og skjalli, þegar ég heyri orðið menning óttast ég að nú hafi ég tapað öðrum þúsundkalli, kannski þeim síðasta, nú eigi ég ekki fyrir húsnæðinu mínu, tómstundum barnanna, nú eigi ég ekki fyrir plötum og bókum og leikhúsmiðum, geti ekki fætt menninguna á þeim fjárútlátum sem hún þarfnast, svöng sem hún er, það verði hrísgrjón í kvöldmat, það verði hafragrautur í kvöldmat, og svo verðum við borin út. Þegar tveir eða fleiri menn sem viðurværi sitt hafa af menningarfrumframleiðslu – sjálfstætt starfandi, gætum við kallað þá, harkara, frjálsa anda, listamenn og skáld – þegar slíkir menn koma saman og heyra orðið menning, kannski hvísla þeir það hver að öðrum, kannski garga þeir það, kannski skrifa þeir það sposkir á blað eða mála á vegg, einsog andskotann, fara þeir undireins að tala um fé, um greiðslur og lífeyri og skatta, um bókhald og umsóknir, þetta sagði mér annað hvort Eiríkur Guðmundsson eða Jón Kalman Stefánsson, við vorum áreiðanlega að tala um skatta og bókhald, greiðslur og lífeyri, tala um fé, skera hrúta hver öðrum til skemmtunar, kynda hver upp í öðrum, reyna að muna hver ætti að borga næsta umgang á Langa Manga, reyna að bera saman bækur og reyna að komast að niðurstöðu um það hver hafi þurft að heyra þetta skelfilega orð – menning – oftast og hver sé blankastur, hver sé snuðaðastur, undirgreiddastur, hver skuldi mestan skatt, hver óttist mest upphæðirnar í lífeyrissjóðabréfunum – sem hljóma alltaf einsog hótanir um sult, að maður endi á hálfum skósólum, étandi hinn helminginn upp úr súpupotti – og svo þylja menn sótbölvandi upp stofnanirnar sem séð hafa um alla þessa menningu, sem standa fyrir yfirvofandi sulti, stórfyrirtækin og smáfyrirtækin, ríkisstofnanirnar, borgirnar og bæina, bókasöfnin, starfsmannafélögin, átthagafélögin, leikfélögin, plötuútgáfurnar, bókaforlögin, tímaritin, listasöfnin og menningarmiðstöðvarnar sem lifa sínu í bílífi í nafni þessa orðs – það er enginn undanskilinn, það er sami talandi rassinn undir þessu öllu saman, talandi rass sem segir bara menning, menning, menning í sífellu meðan við segjum pening, pening, pening – stofnanirnar sem séð hafa um að fylla sali af klappandi fólki, svo við, þessir menn sem erum alltaf að segja orðið menning hver við annan getum hughreyst okkur við að menning snúist um eitthvað annað en peninga, eitthvað stærra en peninga, breiðara, dýpra, víðtækara en peninga, um fegurðina og sannleikann og það er líka satt, ef það væri ekki fyrir fegurðina og sannleikann myndum við aldrei segja menning, aldrei teygja okkur í skammbyssuna, aldrei fletta af okkur blautri verjunni eða rífa af okkur björgunarhringinn, fyrir athyglina, fyrir fegurðina, fyrir ástina, fyrir sannleikann, fyrir hégómann og réttlætið, fyrir tárin, brosin og takkaskóna, fyrir hungurlúsina, því hungurlús er líka tekjur og einn daginn – einn daginn, kæru hlustendur – verðum við hvort eð er heimsfrægir og vellauðugir og þann dag munum við hlæja hátt og innilega að fastlaunaauðæfum annars fólks, það er annað hvort það eða sultur, annað hvort það eða skammbyssan og fegurðin, sannleikurinn og skjallið, hrútar, ýsur, kindur og blautar verjur.


