
Í kvöld horfði á kvikmyndina Nora frá árinu 2000. Þar leikur Ewan McGregor James Joyce og Susan Lynch aðalhlutverkið, Noru Barnacle – nú hafði ég næstum skrifað „eiginkonu James Joyce“ en þau voru auðvitað ekki gift. „Kærustu“ hljómar samt eitthvað þunnildislega. Þau voru allavega saman ævilangt og eignuðust tvö börn.
Þetta er í besta falli ágæt bíómynd. Einsog gjarnan er um ævisögumyndir þá er reynt að troða ansi mörgu inn. Það verður svo tvöfalt erfiðara fyrir þær sakir að James Joyce er mjög fyrirferðarmikill – bæði sögulega séð og svona prívat. Myndin er „byggð á“ ævisögu Brendu Maddox um Noru og ég fékk áhuga á að lesa hana. Meðal annars vegna þess að maður treystir auðvitað ekki Hollywood fyrir neinum svona upplýsingum, ekki einu sinni breska Hollywood. Ég varð svo sem ekki var við neinar stórfenglegar staðreyndavillur af því sem ég þekki til sjálfur en það var ýmislegt sem ég vildi fara að fletta upp hvernig hefði verið.
Susan Lynch og Ewan McGregor eru bæði góðir leikarar og persónurnar sem þau sköpuðu í þessari mynd voru trúverðugar og áhugaverðar. Eini vandinn – fyrir mig – var að þau voru bara ekki í nógu miklu samræmi við fólkið einsog ég hef ímyndað mér að þau hafi verið. Nora og Jim. Í huga mér eru þau bæði miklu erfiðari í umgengni – ekki síst Joyce. Nora myndarinnar virkaði borgaralegri og menntaðri og sjálfstæðari en sú Nora sem hefur birst mér í ævisagnahlunki Ellmans. Og Jim er þar drykkfelldari og frekari – og í senn alvarlegri og groddalegri í húmor. Ewan er svo mjúkur og hefur svona „stillta“ áru yfir sér. Og Peter McDonald sem leikur Stanislaus bróður Jims hvíslar eiginlega alla myndina. Ég sé hann líka fyrir mér sem strangari mann. Allt þetta byggi ég auðvitað á einhverri blöndu af Ellman og því hvernig persónur í bókum Joyce birtast manni – og hvaða tilfinningu maður fær fyrir þeim.
Á dögunum sá ég líka The Dead eftir John Huston, með Anjelicu dóttur hans í aðalhlutverki. Það er miklu betri mynd og fylgdi undarlegri byggingu smásögunnar í Dubliners ansi vel – þótt hún þyki áreiðanlega dramatúrgískt disaster. Sem er meðal annars það sem mér líkar vel í henni – hún er óþæg við allar hugmyndir um hvernig maður eigi að segja sögu. Ríflega þrír fjórðungar sögunnar gerast í veislu þar sem við kynnumst alls konar fólki sem fyrst og fremst kemur, étur og fer. Síðasti fjórðungurinn er svo það sem fólk man yfirleitt – í lok veislunnar syngur tenór nokkur Lass of aughrim og einn gestanna, kona, verður svolítið leið. Hún fer heim með eiginmanni sínum og segir honum af dreng sem hafi sungið þetta lag fyrir hana einu sinni, og elskað hana heitt þegar hún var ung og hangið veikur fyrir utan gluggann hjá henni í grenjandi rigningu – hún hafi reynt að senda hann heim en hann ekki farið fyrren seint. Og svo dáið úr lungnabólgu. Manninum verður bæði ljóst að drengurinn hefur dáið fyrir eiginkonu hans og að hún elskar hann enn og hann mun alltaf eiga stærri hlut í henni en hann getur sjálfur nokkurn tíma eignast. Hún sofnar og hann starir út í snjókomuna dapur.

Einu hjó ég þó eftir í myndinni, sem var öðruvísi en í sögunni, að það er dregið úr hér og þar á meðan á veisluhlutanum stendur. Einsog til þess að fólkið sem er ekki að fara að vera í lokasenunni dragi ekki að sér of mikla athygli. Þannig hefur tenórinn t.d. ekki viljað syngja alla veisluna en syngur svo loks einn inni í stofu með konu sem hann er að stíga í vægninn við þegar allir eru að fara – gestirnir heyra sönginn bara fram á gang. Í myndinni kemur hann fram og fólk hrósar söngnum og hann segir eitthvað á borð við: „Nú fannst ykkur þetta í lagi? Ég sem er svo hás.“ Ég er ekki með bókina hjá mér og nenni ekki að standa upp til að hafa þetta orðrétt en í sögunni hreytir hann meira ónotum í gestgjafana – einsog þau séu fávitar að halda að hann hafi verið að syngja vel, hann sé augljóslega hás og falskur. Sem eru auðvitað miklu forvitnilegri viðbrögð. En Joyce svarar því aldrei hvers vegna hann er svona gramur (kannski bara af því það var búið að þrábiðja hann að syngja, kannski gengur ekki nógu vel með viðreynsluna, kannski er hann bara eitthvað illa fyrirkallaður út af einhverju öðru – nýbúið að reka hann úr einhverju söng-giggi eða eitthvað). En það er líka mjög Joyceískt að láta ekki slíkt eftir lesendum – leyfa okkur að giska.
Það sem fyrri partur sögunnar gerir er að búa til heim þar sem smáborgarasamfélagið í Dublin virðist sjálft samsett úr hálfframliðnu fólki. Það eru allir einhvern veginn fastir og búnir að vera – og búnir að vera að lifa lífinu í staðnaðri og leiðinlegri rútínu árum saman. Að setja sögu saman á þennan hátt var áreiðanlega ekki jafn byltingarkennt þegar Joyce gerði það – það er annað sem var byltingarkennt við hana, ekki síst að vera svona nærgöngull persónum sínum. Lokahnykkurinn er svo til þess að árétta þetta – þetta fólk er allt fangar fortíðarinnar, vofur í eigin lífum.
Það slá mann líka ákveðin líkindi með The Dead og Ulysses öllum – í því að sagan er fyrst frekar breið samfélagslýsing (á Dyflinnarbúum) þar sem alls konar fólk á sér fulltrúa en maður veit ekki hvert ætlar, veislufrásögnin er dálítið kaos, sem leiðir síðan út í sögu af afbrýðissemi (sem er grunnsagan í Ulysses). Ég áttaði mig svo ekki á því fyrren ég horfði á mynd Hustons að lokakaflinn í henni er hálfgerður mónólóg – við hverfum inn í huga eiginmannsins, þótt það sé í þriðju persónu. En annað en Molly Bloom sem á lokaorðið í Ulysses er hann bugaður – einræða Molly er miklu meira lífsjátandi (byrjar á einu Yes og endar ´a mörgum). Og ég áttaði mig á þessu með mónólóginn einfaldlega vegna þess að Huston fer þá leið að láta restina gerast í voiceover – af því maður verður einfaldlega að sjá inn í höfuðið á eiginmanninum til þess að sagan verði skýr.
Eitthvað líkt þessari sögu þarna í endann kom fyrir Noru Barnacle þegar hún var ung í Galway og spilar The Dead þess vegna rullu í Noru líka. Hún missti raunar tvo vonbiðla á unga aldri, annan úr berklum og hinn úr taugaveiki OG lungnabólgu – og þeir hétu báðir Michael einsog drengurinn í The Dead. Og annar þeirra stóð fyrir utan gluggann hennar í rigningunni.

