
Það var verið að skammast í Olgu Tokarczuk fyrir að segjast hafa „notað“ gervigreind við skriftir. En við nánari eftirgrennslan sagði hún einfaldlega að hún notaði hana við heimildavinnu – á fyrstu skrefum, allt væri dobbeltékkað – og að hún fyndi stundum upp á skemmtilegum hlutum sem væru henni innblástur.
Í fyrsta lagi er sá höfundur sem leitar sér ekki að innblæstri hvar sem hann er að finna – undir öllum steinum – bara í ruglinu. Að hirða hugmyndir af gervigreindinni er ekkert vitlausara en að hirða hugmyndir af heimskulegum vefsíðum eða því sem maður misheyrir fólk segja úti á götu. Ég tala nú ekki um þegar gervigreindin er í einu af sínum ranghugmyndarköstum. Í öðru lagi þá er gervigreindin ágæt í vissri tegund af heimildavinnu – til þess að beina manni í rétta átt. Hún getur svarað óvenjulegri spurningum en flest sagnfræðirit. Komið með samantektir. Það borgar sig ekki að taka þær alvarlegar en bara það sem einhver segir við manni í kvöldverðarboði og maður er að reyna að rifja upp daginn eftir. En það getur alveg hjálpað manni áleiðis að einhverju sem maður vill vita.
***
Í Svíþjóð er eitthvað verið að ræða kitsch í bókmenntum. Ekki síst í tengslum við skáldsöguna Flesh eftir David Szalay – sem ég hef ekki lesið, en fólk vill sem sagt meina að sé óttalegt kitsch. Það myndi ekki koma mér á óvart, það er allavega alveg nóg af kitschi sem hlýtur alþjóðlega viðurkenningu – dómínerar jafnvel – og hefur sennilega alltaf verið. Life of Pi – man einhver eftir henni? Svei. Paolo Coelho átti tímabil áður en hann var eiginlega dæmdur út af sakramentinu í fagurbókmenntaheiminum – en um skeið var látið með hann einsog hann væri nýr Umberto Eco. Bókaþjófurinn. Ferrante – að mínu mati. Oksanen, a.m.k. Hreinsun. Flugdrekahlauparinn.
En auðvitað er þetta allt huglægt. Það er annar pistill sem ég las í dag – eftir Fredrik Hertzberg – finnlandssænskur en í ríkissænsku blaði og nefnir lengri ritgerð um Mamma Mia! söngleikinn sem er verið að sýna í Svenska teatern í Helsinki. Höfundur þeirrar ritgerðar er mest að kljást við þá staðreynd að öllum öðrum finnist þetta svo frábært – og hvort hann hafi þá rangt fyrir sér. Mömmu hans og pabba finnst söngleikurinn geggjaður. Og uppsetningin. En rýninum finnst sýningin þunnildi. Það dugir sennilega ekki að segja að hann sé kitsch – það er hluti af verkinu. Í sama pistli nefnir Hertzberg nýlega veitingahúsarýni þar sem veitingastaðurinn fékk útreið – nýr veitingastaður sem var með margar stjörnur og mikla umfjöllun á netinu reyndist handónýtur. Rýnirinn spurði meira að segja gervigreindina sem sagði að þetta virtist vera stórkostlegur staður. En svo kom í ljós að stjörnurnar komu allar frá fólki sem tengdist eigendum staðarins. Og gervigreindin – sem hefur ekki súbjektífar skoðanir á neinu, heldur er objektíf samantekt á tungumáli sem viðhaft er um hvað sem hún er spurð út í – spurði bara þá sem höfðu gefið stjörnurnar. Niðurstaða Hertzbergs er meðal annars sú að ef það er einhver vinna sem gervigreindin getur aldrei unnið er það vinna gagnrýnandans – nema vinna þeirra gagnrýnanda sem vilja aldrei skila séráliti, sem herma bara eftir það sem síðasti maður sagði (og þannig gagnrýnendur eru sannarlega til).
En gagnrýni er sem sagt ekki einhver samtala álita allra sem upplifðu eitthvað verk. Hún er ekki goodreads stjörnurnar sem bók fær. Ekki imdb einkunnin. Heldur tiltekin afstaða – mismikið lærð og misrökstudd frá ólíkum sjónarhornum fólks sem gefur sér ólíkar forsendur fyrir mati sínu. Og hefur jafnvel ólíka fagurfræði (það er alltof algengt að fólk telji sig þurfa að líta framhjá fagurfræði sinni og smekk þegar það er að gefa „faglegt álit“ – það er listhatandi fásinna).
En einsog Fredrik Hertzberg bendir á lifum við á tímum þar sem við viljum helst geta talið allt og metið það út frá tölunni. Bókin sem seldist mest er best en ef hún er með lága goodreads einkunn dregst það frá sölugæðatölunni. Þetta er kapitalísk lógík þótt við horfum alveg framhjá peningunum í dæminu – þessi endalausa stærðarkeppni.
Ég man ekki hvenær ég heyrði einhvern síðast halda passjoneraða ræðu fyrir einhverju sem er vanmetið. Nema kannski einhverju svona guilty pleasures dóti. Sem er auðvitað aldrei vanmetið – guilty pleasures eru undantekningalaust metsöludót sem er elskað í drasl. Colleen Hoover og Bachelor.

