
Ég veit ekki hvort ég þarf að hafa fleiri orð um Dublin. Þetta var svolítið einsog átta daga heimsókn í Harry Potter safn fyrir miðaldra menn með fetish fyrir James Joyce. Ég var uppnuminn yfir öllu. Uppnuminn yfir rústunum af Ormond-hótelinu – sem var rifið nýlega, það stendur bara eitt horn eftir – uppnuminn yfir spítalanum úr Oxen of the Sun sem er löngu búið að rífa og löngu búið að byggja nýjan á sama stað. Eða spítalanum sem stendur þar sem Eccles stræti 7 var (heimilisfangið er auðvitað enn til staðar en heimili Bloomhjónanna horfið).. Uppnuminn yfir túristabúllunni Davy Byrnes. Uppnuminn yfir að sjá vitann á Howth. Liffey. Gresham hótelið (úr The Dead). Lestarstöðina þar sem pósthúsið var þar sem Bloom sækir bréfið frá Mörthu. Swenys er æði – eiginlega bara safn um Joyce og rekið af dásamlegu fólki. Á Museum of Literature er hægt að sjá Ulysses eintak númer eitt. James Joyce centre er líka dásamlegt og ekki síður James Joyce Tower í Sandycove.
Stundum var þetta einsog að ganga um í púsluspilinu sem ég gerði í fyrra.
Bloomsday hófst korter yfir sjö að morgni með göngu upp í Belvedere College til að éta nýru – þar voru flestir uppáklæddir – og lauk á Mulligans einhvern tíma eftir miðnætti. Við vorum svo þreyttir á næstsíðustu leiksýningunni að við máttum heita góðir að sofna ekki. Hresstum okkur við með kvöldverð og fórum svo á Strolling through Ulysses uppi í Sandycove – sem var mjög skemmtileg. Við áttum eitt laust kvöld en ég eyðilagði það með því að bóka sæti á leikrit annars Íra, An Ideal Husband.
Síðasta daginn fórum við í göngutúr með Les frá JJ Centre í gegnum Lestrygonians kaflann og svo á Stories from Dubliners um kvöldið, þar sem tveir leikarar – sem léku líka í Cyclops, sem ég sá áður en strákarnir komu – fóru í gegnum Two Gallants, A Little Cloud og Counterparts.
Á heimleiðinni kom ég við hjá Alkinóusi konungi og Arete á Skeríu – eða sem sagt mömmu og pabba, sem voru í bústað í Söðulsholti – og sagði af ferðum mínum, einsog vera ber. Hékk þar í tvær nætur, keyrði svo í bæinn og festi kaup á fallegri bassagígju í Hljóðfærahúsinu, og brunaði heim.
Hér er ég einn þessa dagana. Aram kemur á fimmtudag og Aino kemur sama dag og ég fer – 13. júlí – hún verður hjá ömmu sinni og afa meðan við Nadja skjótumst til norður Svíþjóðar á bókmenntahátíð. Eftir það erum við öll heima. Ég er að þýða Liken vi begravde eftir Linu Wolff og stend upp frá tölvunni daglega einsog í vímu yfir því hvað þetta er góður texti. Ég held hún eigi að koma út næsta vor. Ég brann sjálfur inni með að klára fyrir haustið – hefði þurft að vera með bærilega stöndugt handrit í maí, ekki síst af því sumarið fer í Líkin hennar Linu, og svo er bara enn svolítið óljóst fyrir mér hvað þessi bók sé. Svo hjálpar ekki til að vera að þýða svona bók, það er varla að manni finnist maður vera neinn rithöfundur frammi fyrir svona texta – bara eitthvað skítseiði, svo ég umorði upp úr öðrum Svía. En það eykur tiltrú manns á bókmenntunum – einsog raunar Dyflinnarferðin og að sjá hversu mikið af fólki er uppnumið með manni yfir James Joyce.
Það er líka gaman að hrífast með, ölvast – heimurinn er alltaf að reyna að hrifsa af manni hæfileikann til að ölvast af listum, alltaf að þröngva upp á mann einhverju jarðbundnu kjaftæði, ýta tilfinningalífinu öllu upp í haus eða hreinlega alla leið út.

