Nótan er bara 20 prósent, sagði Miles Davis – 80 prósentin sem eftir standa eru viðhorf andskotans sem spilar hana. Attítúdið. Ég trúi á þetta en fór svo að velta því fyrir mér hvort að þetta mætti heimfæra á orð. Ég held að viðhorfið innan t.d. ljóðlistar og að einhverju leyti allra fagurbókmennta sé að rétta orðið sé lykilatriði – enda er ritlist ekki performatíf, einsog tónlist, en er hún ekki samt líka performatíf? Kannski eru setningar bara mismikið editeruð upptaka af performans. Ég ætla að prófa þetta, að treysta á að orðið sé í mesta lagi 20%, og restin snúist um að vera með góð sólgleraugu.
Heimasíðan mín liggur niðri vegna árásanna á 1984. Bloggið er á substack og hér finnum við því ekkert fyrir því. Hins vegar lá tölvupósturinn minn líka niðri í nokkra daga en hrökk í gang í morgun. Og þá hrúgaðist inn alls konar dót.
Hi Eiríkur,
I’m Micheal Aboderin. I was struck by Illska’s interwoven movement
between Agnes’s family history in 1941 Jurbarkas and her present-day
focus on the Holocaust and xenophobic populism
und so weiter
Hello Eiríkur,
I hope you’re doing well. I’m Elizabeth, and I recently came across Illska: La maldad.
What caught my attention is how the novel connects a little-known family history rooted in the 1941 massacre in Jurbarkas with Agnes’s modern-day preoccupation with the Holocaust and xenophobic movements
und so weiter
Hello Eiríkur,
I came across your writing and was interested in the breadth of your work across novels, poetry, essays and translation. Your novel Illska brought difficult questions of history and ideology into a widely discussed literary form, while your more recent novel Náttúrulögmálin turns toward the history and atmosphere of Ísafjörður. I also noticed the publication of your poetry collection Fimm ljóð in 2025.
und so weiter
Og í þessum orðum skrifuðum fékk ég líka þennan:
Your novel Troll explores some of the more uncomfortable contradictions of contemporary society, particularly the relationship between personal identity, public perception and the influence of online culture. Through Hans Blær, a character whose presence moves from the internet into radio and television, the novel examines how an individual can become both a public personality and a source of ideological conflict.
und so weiter.
Þessir póstar eru miklu lengri og mjög flatterandi augljóslega og enda alltaf á einhvers konar tilboði – yfirleitt boði um eitthvað ókeypis, þátttöku í hátíð, kynningarpakka fyrir kvikmyndun, umfjöllun í bókaklúbbi, möguleika á verðlaunum eða almennan aukin sýnileika. Ég les varla nema fyrstu línuna lengur – það er ekkert óhugsandi að þetta verði til þess að maður missi af einhverjum raunverulegum kostaboðum – en jafnvel þótt ég lesi þetta ekki er ég alltaf svolítið upp með mér. Hól er svo lævíst. Þetta er kannski einsog með sjálfshjálpartæknifræðingana sem ráðleggja fólki að hrósa sjálfu sér í spegilinn, að stara í augun á sér og segja „þú massar þetta!“ eða eitthvað álíka. „Þú ert geggjaður.“ Einu sinni fór ég í ljósmyndatöku þar sem var svona hæpmanneskja með sem gerði ekki annað en að segja mér hvað ég væri „flottur“. Það var þegar það var enn budget í fjölmiðlun. Confidence booster. Skiptir minna máli að maður trúi því og meira að maður bara geri þetta – hugmyndin er sú að venji maður sig á að ganga beinn í baki verði maður á endanum svona týpa sem gengur bein í baki. Ef einhver segir manni að maður sé flottur verður maður á endanum flottur. Ég les þetta ekki, póstana, en ég veit að textinn er allur um hvað ég sé áhugaverður rithöfundur, og það gleður mig. Ég viðurkenni það ekki fyrir neinum, en það gleður mig. Kannski gerir það mig að áhugaverðum rithöfundi á endanum.
En ég fæ sjaldan annan tölvupóst en þennan. Einstaka félagi sem skrifar mér bréf. Sum þeirra eru gamaldags, svona einsog bréf voru á pappír, en berast í tölvupósti. Sonur minn í Svíþjóð skrifar mér stundum þannig bréf. Og stundum hef ég áhyggjur af að ég missi af einhverju skemmtilegu af því ég er hættur að nenna að fylgjast með tölvupóstinum mínum (og þess vegna skipti það mig engu að hann lægi niðri í nokkra daga).
Ég horfði á Reality Bites í vikunni og það var margt sem sló mig, margar augljósar tíðarandabreytingar, en kannski ekki síst þessi raunveruleikakrafa. Krafan um að hlutirnir séu raunverulegir. Bóhemkarakterinn sem Ethan Hawke leikur segir við bóhemkarakterinn sem Winona Ryder leikur að ef þau byrji saman, sem hann vill, þá verði hún að sætta sig við að hann verði henni ekki alltaf góður. Stundum verði hann vondur. Ef hún vilji einhvern sem verði henni alltaf góður sé betra að hún byrji með uppa-karakternum sem Ben Stiller leikur. En að hann, bóhemkarakterinn, sé það eina raunverulega í lífi hennar. Og í gegnum myndina eru það hin sjálfgefnu hamingjusamlegu endalok allra narratífa – sigur fæst með því að kjósa raunveruleikann. Ekki gæskuna, ekki ferilinn, ekki listina – þessu eru öllu fórnað fyrir það sem er í grunninn meira að segja í mesta lagi einhvers konar snertur af raunveruleika. Og það óþolandi, ókurteis, skítugur og illa lyktandi snertur.
Ethan og Winona hefðu ekki látið gervigreindarbottana telja sér trú um að verk þeirra væru merkileg. Ekki brosað út í annað og leyft þessari brengluðu spegilmynd að lyfta geði sínu.
Við erum auðvitað löngu gengin kapítalinu á hönd og frá kapítalinu og lógík kapítalsins – sem gegnumsýrir agenta, réttindaskrifstofur, bókamessur, bókaforlög, streymisveitur, bókaverslanir o.s.frv. – er leiðin frekar stutt yfir í lógík gervigreindarbottana. Öll krefjast þau mikils vinnuframlags og hárrar prósentu (eða stöðugra greiðslna) fyrir eins lítið og þau komast upp með og borga sjálfum sér fyrst og mest. Það er einfaldlega viðskiptamódelið. Það er kapítalisminn og innan hans mega (hégómagjarnir) listamenn sín lítils.
Ég las grein í Guardian á dögunum þar sem rætt var við höfunda sem höfðu fallið fyrir bottunum og það var alls ekki þannig að þeir fengju ekkert út úr því. Kona ein sagði frá því að hún hefði átt í margra ára sambandi við þetta fólk – því auðvitað tekur fólk við samskiptunum þegar bitið er á agnið – og talið einfaldlega að þetta væri umboðsskrifstofa einsog hver önnur. Alltaf þegar hún var orðin lúin á því að það væri ekkert að gerast gerðist eitthvað – einu sinni var meira að segja keypt risa auglýsing á Times Square. Allt til þess að halda henni. Á endanum fór hún og hitti mann sem hún hafði átt í áralöngum samskiptum við, mann sem hún taldi vin sinn. Þau voru komin til Tælands til þess að skáta tökustaði fyrir mögulega bíómynd upp úr skáldsögunni hennar. Og þá bara játaði hann. Þau voru búin að vera að mjólka hana árum saman og það var ekkert á bakvið neitt af þessu nema flöff. Í sömu grein var viðtal við lögfræðimenntaða konu sem hafði unnið á svona umboðsskrifstofu og hélt fyrsta hálfa árið að þetta væri alvöru – þar var ekki hlegið að mjólkurkúnum, heldur var látaleikurinn í gangi alla leið upp á topp, og rann bara smám saman upp fyrir henni að þetta var skam.
Og ein af ástæðunum þess að skamið gengur upp er að bransinn er allur meira og minna á þessari skam-grensu – við viljum trúa því að við séum að slá í gegn, viljum trúa því að það felist ótrúleg tækifæri í því að vera á Storytel eða að bókin okkar birtist í einhverjum kynningarbæklingi – og mest lýsandi dæmið fyrir það er hvernig er gengið á listamenn með að vinna ókeypis, fyrir „sýnileikann“, jafnvel til þess að selja vöru sem einhver annar hirðir megnið af hagnaðinum (og endurgreiðslunni og afskriftunum) af. Og listamenn láta það yfir sig ganga vegna þess að manni hlýnar að innan við athyglina, maður gleðst að einhverjum virðist þykja það sem maður er að gera merkilegt, bráðnar hreinlega, finnur dýrðarþrána spretta upp innra með sér og hugsar núna smellur það, núna loksins, núna verð ég frægur, ef ég bara streða örlítið lengur. Grindið hlýtur að skila sér, það vita allir að maður á að miða á stjörnurnar og meikið er 90% streð/grind en 10% hæfileikar (og hæfileikar eru, einsog kom fram áður, 20% vönduð vinnubrögð og 80% góður leðurjakki) og á endanum er það mesta sellátið sem vinnur.
Annars eyddi ég lokahluta vinnudagsins í gær í að fara yfir viðtal út af tekjumálum rithöfunda sem birtist í næstu Heimild – tl;dr útgáfan er að við erum öll meira og minna bókstaflega fátæk – var mjög deprímeraður á eftir og rölti svo í fiskbúðina þar sem ég fékk synjun á kortið mitt.



