Tekjum rithöfunda má með smá einföldun skipta niður í fjóra hluta. 1) Sölutekjur 2) Listamannalaun 3) Bókasafnssjóður og 4) Önnur viðvik (upplestrar, pistlar, þýðingar o.s.frv.)
Sölutekjur
Fyrir tuttugu árum kostaði ný íslensk skáldsaga tæpar fimm þúsund krónur. 4.690 – ef við tökum Arnaldinn 2005 sem dæmi. Arnaldur ársins 2025 kostaði 8.699. En allt er auðvitað dýrara – vísitala neysluverðs hefur hækkað um 165% á 20 árum og ef verðlag bóka hefði fylgt hefði Arnaldurinn kostað 12.448 krónur – sem þýðir að raunlækkunin er upp á 30%. Tekjur rithöfunda af bókum sínum er hlutfall af heildsöluverði bóka – ég er ekki með tölur yfir heildsöluverð en ég held mér sé alveg óhætt að fullyrða að tölurnar séu í svipuðum hlutföllum. Altso, þriðjungs skerðing. Höfundur sem hefði fengið milljón í laun árið 2005 fengi í dag 698.298 kr. Ég vil ekki að skáldsaga kosti 13 þúsund – svitna við tilhugsunina – en þetta er samt staðreynd sem vert er að halda til haga.
Ofan á þetta kemur svo minni bóksala. Það er ekki alveg hlaupið að því að skjóta á hversu mikil hún er á Íslandi – þær tölur liggja ekki á lausu – en ef miðað er við stöðuna á norðurlöndunum er samdrátturinn á bilinu 30-50%. Förum milliveginn, segjum 40%, og rithöfundurinn sem fékk milljón árið 2005 er þá kominn niður í 419.400 krónur.
Við gætum tekið inn í þetta líka aukinn bestsellerisma – afþreyingarbókmenntir eru stærri og stærri hluti kökunnar og dreifingin hefur versnað, það standa færri titlar á bakvið stærstan hluta sölunnar – og sjálfsagt hefur hlutur þeirra sem fást við einfaldar fagurbókmenntir skerst meira en þessu nemur. En það er ekki hlaupið að því að festa neina tölu á slíkt – þar eru of margar fljótandi grensur, þótt tilhneigingin blasi við – svo ég læt það vera.
Listamannalaun
Listamannalaun hafa rýrnað um 13% á síðustu tíu árum – einsog fram kom í Þetta helst í dag– og miðað við almenna launaþróun eru þau ekki nema 2/3 af því sem þau voru 2008. Og voru ekki góð þá. Full laun í dag – eftir að búið er að greiða af þeim skatta og gjöld – ná vel að merkja ekki 350 þúsund. Þá eru fleiri um hituna – þjóðinni fjölgar – og vegna þess að úthlutunum hefur ekki fjölgað eru fleiri rithöfundar sem þurfa að sætta sig við skert starfshlutfall, fá kannski 6 mánaða laun og þurfa að smyrja þau yfir árið – eða hætta bara og snúa sér að öðru. Allir aðrir styrkir – til þýðinga, ferða og annars – hafa rýrnað í sama takti.
Bókasafnssjóður
Bókasafnssjóður er einsog jójó í takti við líðan menningarmálaráðherra – heildarupphæðin er ákveðin við fjárlagagerð án nokkurs rökstuðnings og henni er svo skipt á milli rithöfunda í samræmi við útlán. Höfundar eru vel að merkja skyldugir til þess að leyfa þessi útlán – þetta er ekki þjónusta sem við seljum eða fáum að selja eða getum samið um heldur erum skyldugir til að veita og fyrir það fáum við greitt bara eitthvað, sem hlýtur að vera freistandi þegar maður ætlar að skila núllkrónu halla á fjárlögum – afleiðingarnar eru „engar“ nema fyrir einhverja aumingja úti í bæ. Bókasafnssjóður lækkar þannig um ríflega þriðjung í ár og hefur þá lækkað um 50% frá 2021 þegar hann var stækkaður vegna þess að blindrabókasafnið kom inn í hann. Sú hækkun hefur öll verið tekin til baka og vel ríflega það.
Önnur viðvik
Flestir taxtar hafa staðið í stað árum saman og þeim sem greiða réttan taxta fækkar sömuleiðis ár frá ári – það eru t.d. nærri allar þýðingar á landinu annað hvort unnar undir taxta eða á svokölluðum A-taxta, sem er ætlaður léttum afþreyingarbókmenntum, alveg sama þótt um sé að ræða fagurbókmenntir sem snúnar eru í þýðingu. Aðspurðir yppta útgefendur öxlum og segja einfaldlega hart í ári.
Lágmarksupplestrartaxtinn í Noregi er 100% hærri en íslenski taxtinn – í Svíþjóð er hann 50% hærri og þar er komið fram við hann einsog lágmarkstaxta, ef maður er langt að kominn eða „stórt nafn“ eða þátttakandi í stærri viðburði fær maður meira, á Íslandi vilja flestir að maður lesi ókeypis eða til vara á svona hálfum taxta, og það heyrir til undantekninga ef ferðalög eða gistingar eða aðrar sporslur eru innifaldar, á meðan það er nánast regla annars staðar að reynt sé að koma ofan í mann góðum mat. Að vísu var mér einu sinni boðið að keyra til Akureyrar til að lesa upp fyrir súpu en það var líka öll greiðslan – ég sagði nei og mun því aldrei vita hvort súpan hafi verið þess virði.
Greiðslur fyrir pistlaskrif á Íslandi eru brandari. Ég er ekki með nein meðaltöl hjá mér en af reynslunni fær maður sirka 4-10 sinnum meira í Svíþjóð en á Íslandi – og það skiptir vel að merkja ekki öllu máli hvort maður er að skrifa fyrir lítið menningartímarit sem greiðir rekstur sinn að mestu með styrkjum eða hvort maður er að skrifa fyrir stærri fjölmiðil.
Svo árar misvel og fólk er í misjöfnum aðstæðum. Sumir eru vel giftir eða eiga pening – eru af góðu fólki. Aðrir eru einstæðir foreldrar án nokkurs baklands. Fólk veikist. Er með námslán eða aðrar skuldir. Þessi róður er misþungur en meira að segja á góðum stundum hjá annáluðum höfundum er hann óþolandi mikið hark.
Fyrir mig er mikill aukakostnaður sem fylgir því að búa ekki í Reykjavík – ég þarf undantekningalítið bara að borga sjálfur undir mig þegar ég vil taka þátt í einhverju í Reykjavík og það bara kostar. Í ár fékk ég 9 mánaða ritlaun sem smyrjast yfir tólf mánuði – það kemur nýr úrskurður eftir rúma viku, ég veit ekkert hvað ég fæ eða hvort ég fæ nokkuð og þannig er það á hverju ári. Sjóðurinn borgar alltaf bróðurpartinn af mínum tekjum og án hans stæði valið milli þess að svelta börnin mín eða hætta.
Mér gekk í ofanálag lítið að koma síðustu skáldsögunni minni (Náttúrulögmálunum) í þýðingar, það var fyrir þremur árum og ég er ekki með skáldsögu í ár, vonandi á næsta, og þótt ég sé að sönnu vel giftur er framhaldsskólakennarinn sem ég er vel giftur ekki þannig launaður að hún geti haldið okkur uppi (betur þó en ég). Ég hef auk þess verið í öllu mögulegu harki í ár – þýtt og þýtt og pistlað og pistlað – og það ásamt léttri skuldasöfnun hefur haldið okkur á floti en það kostar líka að ég kemst miklu sjaldnar í mín eigin skrif. Sem aftur gæti þýtt að ég sé ólíklegri til að fá full listamannalaun og þannig verður þetta allt smám saman óraunsærra – sem er auðvitað rómantísk tilhugsun, skáldið sem er í ský í buxum og skítur eintómum draumórum, en það er sennilega skemmtilegra að horfa á það í gegnum sandblásið gler en að upplifa það á eigin skinni. Það skrítnasta við þetta allt saman er síðan að mér gengur ekki illa – og ég er alls ekki veikur eða í neinum vandræðum þannig lagað – mér gengur bara frekar vel miðað við marga, top of my game og m.a.s. vinsæll. Það er bara einsog bankareikningurinn hafi ekki fengið skilaboðin.



