Það styttist í hrekkjavöku og þar með í jól og því minni ég lesendur, foreldra lesenda og börn lesenda, barnabörn og barnabarnabörn, á að þetta er árstíminn til að lesa Frankensleiki. Ef ég ræki bókabúð myndi ég stilla henni upp. Eða bókasafn. Eða bókasafnsbíl. Kannski stilli ég henni bara upp heima hjá mér.
Taugakerfið í mér er búið að vera logandi, einsog krakkarnir segja, síðustu daga. Skeljarlaust. Sjálfsagt er það hollt. Kallar á alls konar naflagrufl. Það má ekki ganga of langt en það verður stundum að blása í sálinni ef hún á ekki að rykfalla. Þetta hefur samt mest átt sér stað innra með mér. Þar prósessa ég, einsog krakkarnir segja. Hið ytra lék ég á tónleikum og keyrði svo til Reykjavíkur til að sækja Aino og aftur heim. Og sat með henni í gærkvöldi reyndar og hjálpaði henni að læra fyrir próf um Frankenstein. Sem gaf engum í skóinn, kemur í ljós, og bjargaði ekki jólunum. Það eru ekkert mjög mörg ár síðan ég las Frankenstein. Og ég gerði ekki mikið gagn þarna, þannig, nema bara að hlusta á endursögn hennar á bókinni – börnin mín bæði hafa ótrúlegt lag á því að muna söguþráð í smáatriðum. Þau fá þetta ekki frá mér. Ég get ekki einu sinni endursagt uppáhalds bækurnar mínar, sem ég hef marglesið. En hún trúði því ekki sjálf að hún kynni þetta fyrren eftir að hún var búin að halda fyrir mig óæfðan hálftíma langan fyrirlestur.
Ég skil ekki frekar en margir einkunnagjöf grunnskólanna. Kannski aðallega vegna þess að ég geri ráð fyrir að hún sé beisik og hef því ekki sett mig inn í hana – mér sem sagt finnst óeðlilegt (með réttu eða röngu) að ég þurfi að læra einsog fyrir próf í því hvað einkunnir þýði. Það er eitthvað í mér sem hreinlega segir að þetta eigi að vera svo gegnsætt að allir sem kunni að telja upp á tíu – eða fyrstu stafi stafrófsins – eigi að ráða við þetta án frekari undirbúnings.
En hafi ég skilið þetta rétt þá fær maður t.d. eina einkunn – sem er ekki hæsta einkunn heldur t.d. B eða 7 – fyrir að ná því sem heitir hæfniviðmið. Sem væri þá til dæmis að gera öll verkefnin og svara öllu rétt á prófunum. En hærri einkunn fyrir að fara fram úr því sem ætlast er til í áfanganum, með því til dæmis að taka framhaldsskólakúrs eða sýna „meiri dýpt og öryggi“ í námsgreininni. Það sem ég skil ekki alveg í því er þörfin á því að búa til sérstakan einkunnaglugga fyrir … hvað kallar maður over-achievers á íslensku? Afreksfíkla? Hvernig væri að hvetja börn frekar til þess að slappa aðeins af? Heldur en að niðurlægja þá sem læra allt sem þeim er sett fyrir með því að veita þeim lægri einkunn? Maður á ekki að nálgast lífið einsog maður sé að vinna í akkorði.
Svo skilst mér reyndar í þokkabót að þetta sé misjafnlega hanterað eftir skólum. Sem er hálfgalið.
Annars er það nú það eina sem vantar í líf mitt. Gott rifrildi við skólafólk! Síðustu daga hef ég leyft sjálfum mér að hafa skoðanir á Facebook og að fylgja eftir rifrildum við bæði tröll, botta og fólk sem er á valdi botta og trölla – þar af sennilega einhverjum í vægu geðrofi (það er samt erfitt að skilja á milli stundum, vægs geðrofs, og trölla sem vilja kannski bara virðast vera mjög óstabíl til þess að koma manni sjálfum úr jafnvægi). Og svo líka bara venjulegt fólk, vel að merkja, bottarnir og tröllin og nasistarnir eru innan um aðrar og eðlilegri þrætur.
En þrætur við t.d. botta – ég stend mig að því að hugsa annars vegar að maður sé auðvitað ekki að rífast við manneskju en það skipti ekki máli, heldur hitt að yrðing fái að standa án þess að henni sé ögrað. Og hins vegar að það þurfi ekki merkilegt gagnaver til þess að rökræða mann í þrot, drekkja manni í spurningum og fullyrðingum og svívirðingum.
Ég sló annars upp einu tröllinu sem var að þrátta við mig og það spurðist síðast til hans í viðtali í Lestinni þar sem hann var að kynna verkefni sem snerist um að nota gervigreindina fyrir sálfræðiþerapista.
„Stór hluti heimsbúa búa ekki við sömu gæði og hér á Vesturlöndum, með sama aðgengi að þerapistum og hér. Þetta er smá eins og að færa lítið ljós víða um heim“, sagði viðkomandi þá. En er núna sem sagt að hamra á mér fyrir að finnast óréttlátt að fjölfötluðum dreng verði brottvísað til Venesúela frekar en að fá hér þá þjónustu sem hann þarfnast.
Annars sagði mér maður að það væru skuggalega margir dottnir í „létta maníu“ af miklum viðskiptum við gervigreindina. Sel það ekki dýrara en ég keypti það!
Ég á svo alveg eftir að blanda mér í loftbrúarmálið.
Ég las Víti Dantes á dögunum. Og The Third Policeman eftir Flann O’Brien. Og Transcription eftir Ben Lerner – Sverrir Norland spurði mig á dögunum (af gleymdum ástæðum) hvort ég hefði lesið hana og fann henni allt til foráttu á einhvern máta sem fékk mig til að halda að af þessari bók myndi ég sannarlega hafa gaman. Hún er í þremur hlutum og um þann fyrsta – þegar sögumaður tekur viðtal við ídolið sitt, aldraðan listamann – var ég sammála Sverri. Þetta var mjög tilgerðarlegt og þeir voru báðir gersamlega innanholir – allt sem þeir sögðu voru klisjur og það var aldrei nein sérstök spenna í kringum þá ómerkilegu yfirsjón að sögumaðurinn skyldi ekki vera með upptökutæki (ég lenti reyndar í símaviðtali á dögunum, ekki á upptöku, og það kom mér á óvart hvað það gekk illa – ég tók nær öll viðtöl svona, með hraðglósum á lyklaborð, þegar ég vann á BB og það var aldrei neitt mál). Svo kom stuttur kafli þar sem sögumaður er skammaður eftir að hafa viðurkennt í minningarathöfn um kallinn að hann hafi ekki tekið upp viðtalið heldur skrifað það upp eftir minni. Líka ekkert spes. Þriðji hlutinn, sem er bréf vinar sögumanns, sem er líka sonur listamannsins, og fjallar meðal annars um lystarleysi dóttur hans var miklu betri. Sérstaklega það og minna það sem sneri að föðurnum, listamanninum og covid. En kaflinn um dótturina var frábær – og alveg lamandi.
The Third Policeman og Víti voru miklu betri. Víti meira fyrirsjáanlega góð – klassík – og fyrirsjáanleg alveg í gegn, eiginlega fannst mér ég mest vera að lesa þýðinguna, mér var pínulítið sama um þetta þjáða fólk og í hvaða hring það var niðurkomið. Nema Ódysseifur auðvitað, leitt með hann, einsog hann hafi ekki mátt þola nóg, og forvitnilegt að Dante skyldi koma Kassíusi og Brútusi fyrir á versta stað, ásamt sjálfum Júdasi, en þeir fá allir sitt pláss í hverjum kjafti kölska (hann er með þrjú andlit). Og þýðingin er alveg eitthvað til að kjamsa á.
The Third Policeman er svo einmitt bók sem ég myndi alls ekki treysta mér til þess að rekja. Hún fjallar um mann sem verður öðrum manni að bana og samskipti hans í framhaldinu við þrjá lögreglumenn, þar af einn risastóran, í heimi þar sem gildir lögmál – sem ég hef lengi kennt við Tom Waits, hann sagði eitthvað á þessa vegu, hugsanlega eftir að hafa lesið bókina – um að þeir hlutir sem maður notar öðlist hlutdeild í manni og maður öðlist hlutdeild í þeim, hér og hjá Waits eru það sérstaklega reiðhjól sem eru tekinn sem dæmi, og fullyrt að hjóli maður mikið verði maður á endanum að stórum hluta reiðhjól og reiðhjólið fái í skiptum talsvert af manni sjálfum. En þetta er ekki nema brotabrot af því sem á sér stað – og vantar t.d. alla heimspeki de Selbys, sem er fyrirferðarmikil, sérstaklega í neðanmálsgreinunum. Fimm stjörnu bókmenntaverk, hafi ég nokkurn tíma lesið slíkt.



